Sport

Tapaði fyrir mót­herja sem var 28 árum yngri

Andri Broddason skrifar
Venus Williams hefur tapað síðustu 16 einliðaleikjum sem hún hefur spilað.
Venus Williams hefur tapað síðustu 16 einliðaleikjum sem hún hefur spilað. EPA/BRIAN HIRSCHFELD

Venus Williams hefur ekki gengið vel það sem af er ári og hefur tapað öllum 13 einliðaleikjum sínum á árinu. Á opna Guangzhou-mótinu tapaði hún fyrir Lilli Tagger sem er 28 árum yngri en Williams.

Það er ekki oft sem svo mikill aldursmundur er milli mótherja í tennis en Venus Williams er 46 ára. Hún mætti Lilli Tagger í fyrsta leik opna Guangzhou-mótsins sem er aðeins 18 ára. Þetta er stærsta aldursbil milli mótherja á þessum áratug á sterkustu mótaröðinni.

Tagger átti ekki í miklum vandræðum með sigurinn á Williams en bæði settin enduðu 6-2. Slæmt gengi Williams heldur því áfram en hún hefur tapað 16 einliðaleikjum í röð.

Hún hefur fengið að keppa á mótunum vegna þess að henni er boðið að keppa á þeim en áhugamenn um tennis eru ekki vissir hvort hún eigi það skilið ef hún heldur áfram að tapa. Aðrir yngri leikmenn sem gætu verið að fá sitt fyrsta tækifæri á mótaröðinni gætu fengið plássið.

Það sást í leiknum gegn Tagger að Williams er ekki lengur nógu góður sem leikmaður til þess að vera að keppa á mótaröðinni. Þrátt fyrir það þykir henni gaman að spila og að geta gert það enn á meðan hún er 46 ára er afrek út af fyrir sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×