Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar 27. október 2026 14:31 Á föstudaginn var barst mér fréttatilkynning úr óvæntri átt: „Piparsveinafélagið Örvænting á Bakkafirði fagnar því að strandveiðar hafi jákvæð áhrif á atvinnutekjur kvenna.“ Tilefnið var nýbirt skýrsla um áhrif strandveiða og byggðakvóta á atvinnutekjur og útsvarstekjur sveitarfélaga. Í annars nöturlegri skýrslu var ein ljóstýra fyrir einhleypa trillukarla: þrátt fyrir neikvæða fylgni milli strandveiða og útsvarstekna sveitarfélaga benda höfundar á að jákvæð tengsl kæmu fram við atvinnutekjur kvenna. Fylgni eða orsakasamband? Nú skal engan undra þótt margir staldri við. Hvernig geta atvinnutekjur kvenna verið einu jákvæðu byggðaáhrif af atvinnugrein þar sem yfirgnæfandi meirihluti starfa er á landsbyggðinni en 98% eru karlmenn? Svarið má finna í aðferðafræði 101: fylgni er ekki það sama og orsakasamband. Þess vegna kemur ýmislegt skrýtið fram í skýrslunni. Hluti af vandamálinu snýr að skilgreiningu á byggðafestu og hvernig best sé að mæla hana. Skýrsluhöfundar virðast líta á útsvarstekjur sveitarfélaga sem nákvæmustu mælistikuna á byggðafestu og þar af leiðandi útsvar sem bestu skilgreininguna. Þar með minnkar vægi einyrkja í „byggðafestu“ sem gæti útskýrt hvers vegna það er einmitt einyrkjabúskapurinn sem höfundar gefa lægstu einkunn. Tilgangur strandveiða var þó aldrei að skapa útsvarstekjur sveitarfélaga heldur voru þær viðbragð við áliti Mannréttindanefndar sameinuðu þjóðanna og hugsaðar sem frjálsar, ábyrgar og sjálfbærar veiðar sem auðvelduðu nýliðun í sjávarútvegi og efldu um leið atvinnu og mannlíf í sjávarbyggðum landsins. Eins og svo oft áður velja andstæðingar smábáta þá mælistiku sem hentar best hverju sinni. Hvað með atvinnuleysi? Það er þó vel þess virði að skoða aðrar mögulegar skilgreiningar á byggðafestu. Atvinnuleysistölur draga til dæmis upp allt aðra mynd. Tökum Bakkafjörð sem dæmi, ekki eingöngu út af piparsveinafélaginu Örvæntingu heldur aðallega vegna þess að á Bakkafirði er ekkert laxeldi og ferðaþjónusta er í mýflugumynd. Fiskveiðar eru grunnforsenda búsetu enda fær Bakkafjörður töluvert úthlutað úr hinum ýmsu pottum 5,3% kerfisins. Byggðakjarninn er því svo til fullkomin tilraunastofa. Hver eru áhrifin á atvinnuleysi? Á undanförnum þremur árum má greina skýrt mynstur: atvinnuleysi dettur niður þegar grásleppuveiðar hefjast en rýkur svo aftur upp þegar strandveiðum lýkur. Hér eru það einmitt einyrkjaútgerðirnar – grásleppa og strandveiðar – sem skýrsluhöfundar afskrifuðu sem sýna sterkustu áhrifin á byggðafestu. Ætlar enginn að hugsa um börnin? Næst mætti færa sterk rök fyrir því að byggðafesta sé svo til gagnslaus ef engin verða kynslóðaskiptin. Þá er gagnlegt að skoða hver íbúaþróun er með tilliti til aldurs íbúa. Á Bakkafirði hefur íbúum í heild fækkað um 13% frá 2010 (úr 75 í 65) en íbúum yngri en 18 hefur fækkað um 78% (úr 18 í 4). Það sem er sérstaklega áhugavert í því samhengi er að Bakkafjörður fékk fyrst sértækan byggðakvóta 2014 en hrun barna fylgir í kjölfarið. Þess ber að geta að Bakkafjörður er ekki einsdæmi hvað þetta varðar. Aðrir staðir hafa svipaða sögu að segja. Á Raufarhöfn hefur íbúum fækkað um 24% (úr 217 í 166) en börnum hefur fækkað um 91% (úr 54 í 5). Á Suðureyri hefur íbúafjöldi svo til staðið í stað með 300 manns frá 2010 en börnum hefur fækkað úr 90 í 61, eða um 31% – enn og aftur kemur mesta fækkun barna beint í kjölfar sértæks byggðakvóta. Svona mætti lengi telja því einu byggðakjarnarnir sem skera sig úr eru Djúpivogur og Breiðdalsvík. Allir hinir sýna sömu þróun: þegar sértækur byggðakvóti kemur í byggðakjarna fara börnin. Þá vakna óneitanlega spurningar um hvers vegna börnum fækkar umfram fullorðna og hvað það segir um samsetningu íbúanna. Excelskjal vs. raunheimar Tölfræði er ómissandi í félagsvísindum en útskýringargildi hennar er takmarkað. Oft lærir maður meira á því að fara út í raunheima og tala við fólk. Þeir sem þekkja til vita að störfin sem skapast við vinnu í landi eru góðra gjalda verð en að öllu jöfnu lítt eftirsóknarverð fyrir heimamenn. Byggðastefnan sem höfundar skýrslunnar hampa er í raun lítið annað en verbúðarvæðing sjávarplássanna. Barnafjölskyldur flýja og við tekur stöðugt rennsli láglaunafólks í tímabundinni vinnu. Einn félagi minn flutti sérstaklega til Suðureyrar – með konu sinni kennara og tveimur börnum – til að freista þess að fá byggðakvóta. Þar kom hann að lokuðum dyrum; nokkrum árum seinna gafst hann upp og flutti á Ísafjörð. Dæmin sýna að byggðafesta verður ekki mæld í útsvarstekjum einum saman. Þar sem smábátasjómenn fá raunverulegt tækifæri til að sækja sjóinn skapast sjálfbær störf, barnafjölskyldur eiga sér framtíð og samfélögin blómstra. Höfundur er félagsfræðingur og formaður Landssambands smábátaeigenda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun