Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Áróra L Davíðsdóttir skrifar 26. október 2026 18:58 Liðsforinginn Pavel Chekov um borð í USS Enterprise í Star Trek. Leikarinn Walter Koenig er látinn 90 ára að aldri. Hann er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt sem hinn rússneski liðsforingi Pavel Chekov í vísindarskáldskaparheimi Star Trek.
Koenig lést á heimili sínu í Hollywood í gær, segir í umfjöllun Variety. „Í dag syrgjum við Walter Koenig. Hæfileikar hans, hlýja og ógleymanlegur flutningur settu varanlegt mark á kynslóðir aðdáenda um heim allan,“ er haft eftir talsmönnum Koenigs. Áhöfn USS Enterprise.Vísir/Getty Hann hóf leikaraferil sinn snemma á sjöunda áratug síðustu aldar. Hann gekk síðan til liðs við Star Trek-áhöfnina í upphafi annarrar seríu þáttanna og fór með hlutverk Chekov í 36 af 50 þáttum og sex Star Trek-myndum sem komu út í kjölfar þáttanna. Star Trek þættirnir komu út á árunum 1966-1969 og voru sýndir á NBC sjónvarpsstöðinni. Þættirnir fylgja áhöfn geimskipsins USS Enterprise í leiðangri sínum um geiminn. Walter Koenig ólst upp í Manhattan í New York borg.Vísir/Getty Þættirnir eiga að gerast á 23. öldinni og hittir áhöfnin ýmsar verur, þar á meðal hina þekktu Klingona. Þættirnir eiga sér aðdáendur um allan heim og hefur töluvert afþreyingarefni efni orðið til úr heimi Gene Roddenberry sem skrifaði fyrstu þætti Star Trek. George Takei, sem fór með hlutverk Hikaru Sulu í Star Trek, minnist vinar síns í Instagram-færslu. View this post on Instagram A post shared by George Takei (@georgehtakei) „Walter var meira en Chekov. Hann var rithöfundur, kennari, hugulsamur maður og tryggur vinur. Til aðdáendanna sem elskuðu hann í gegnum árin: takk fyrir. Hann elskaði ykkur líka.Hvíl í friði, kæri vinur minn. Haltu áfram stöðugri stefnu.“
Hollywood Bandaríkin Andlát Tengdar fréttir Hollywood-stjarna lést í stórfurðulegu bílslysi Anton Yelchin er látinn aðeins 27 ára að aldri. 19. júní 2016 19:55 Foreldrar látinnar Star Trek stjörnu kæra Fiat-Chrysler Foreldrar Anton Yelchin segja að hönnargalli í bíl Yelchin hafi orsakað dauða Star Trek leikarans. 2. ágúst 2016 19:54 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Fleiri fréttir Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Sjá meira
Hollywood-stjarna lést í stórfurðulegu bílslysi Anton Yelchin er látinn aðeins 27 ára að aldri. 19. júní 2016 19:55
Foreldrar látinnar Star Trek stjörnu kæra Fiat-Chrysler Foreldrar Anton Yelchin segja að hönnargalli í bíl Yelchin hafi orsakað dauða Star Trek leikarans. 2. ágúst 2016 19:54