Erlent

Stór hluti Ox­ford Street orðinn göngu­gata

Birgir Olgeirsson skrifar
Tæplega kílómetra langur kafli Oxford Street í London er nú göngugata. Þar er akstur bíla, strætisvagna, leigubíla og reiðhjóla bannaður.
Tæplega kílómetra langur kafli Oxford Street í London er nú göngugata. Þar er akstur bíla, strætisvagna, leigubíla og reiðhjóla bannaður. Vísir/EPA

Tæplega kílómetra löngum kafla Oxford Street í London var í dag lokað fyrir bíla, strætisvagna, leigubíla og reiðhjól. Breytingin er liður í áformum um að glæða eina þekktustu verslunargötu Bretlands nýju lífi.

Reuters greinir frá því að lokunin sé varanleg og marki fyrsta skrefið í víðtækari endurnýjun svæðisins.

Samkvæmt AP-fréttastofunni nær göngukaflinn frá Orchard Street að Great Portland Street.

Á næsta ári á að bæta við rúmlega fimmtíu trjám, yfir hundrað sætum og tveimur torgum við Oxford Street.Vísir/EPA

„Þetta eru tímamót fyrir London, tímamót fyrir Oxford Street. Þetta er upphafið að breyttum tímum,“ sagði Sadiq Khan, borgarstjóri London, að því er AP hefur eftir honum.

Vilja snúa við hnignun götunnar

Financial Times fjallar um erfiðan áratug að baki verslunargötunni. Lokanir stórverslana á borð við Debenhams og House of Fraser og síðar heimsfaraldurinn hafi sett mark sitt á svæðið.

Auðum verslunarrýmum fjölgaði og lægri leiga laðaði að minjagripa- og sælgætisverslanir. Það hafi ýtt undir ímynd götunnar sem svæðis á undanhaldi.

Borgaryfirvöld vilja glæða verslunarlíf við Oxford Street nýju lífi. Sumir íbúar óttast þó að lokunin leiði til aukinnar umferðar á nærliggjandi götum.Vísir/EPA

Blaðið segir þó að trú fyrirtækja á svæðinu hafi aukist á ný. Auðum verslunarrýmum hafi fækkað verulega og alþjóðleg vörumerki fjárfesti þar nú í nýjum verslunum.

Íbúar óttast aukna umferð

AP greinir frá því að áformin hafi mætt andstöðu íbúa sem óttast að umferð verði beint inn í hverfin þeirra þegar hún hverfur af Oxford Street.

Samkvæmt Reuters verður framkvæmdum stillt í hóf fyrir jól, þegar verslunin er hvað mest. Á næsta ári er meðal annars stefnt að því að bæta við rúmlega fimmtíu trjám, yfir hundrað sætum og tveimur torgum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×