Innlent

Um­deildur sýknudómur þegar haft al­var­legar af­leiðingar

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf.
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf. vísir

Þó nokkrir hafa sett sig í samband við Bjarkarhlíð í kjölfar umdeilds sýknudóms í nauðgunarmáli að sögn teymisstýru úrræðisins. Niðurstaðan dragi úr vilja þeirra til þess að leita réttar síns.

Brasilíumenn ganga að kjörborðinu í dag í seinni umferð forsetakosninga. Val kjósenda stendur á milli sitjandi forseta og frambjóðanda hægrimanna sem mælast hnífjafnir í könnunum.

Formaður Sjálfstæðisflokksins segir enga tryggingu fyrir því að gjaldtaka á ferðamannastaði verði eyrnamerkt innviðauppbyggingu. Stjórnarþingmaður úr Suðurkjördæmi segir að sanngjarnara hefði verið að heimta gjald víðar en úr einu kjördæmi en hafa verði í huga að ferðamenn greiða gjaldið, ekki heimamenn.

Lokaumferð Bestu deildar karla fór fram í gær þar sem Þór náði að tryggja sér áframhaldandi sæti í deildinni á næsta ári.

Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 25. október 2026



Fleiri fréttir

Sjá meira


×