Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 24. október 2026 16:03 María Rut er þingmaður Viðreisnar. Vísir/Anton Brink María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, segir fyrirhugaða breytingu á afsláttarkerfinu Loftbrú ekki duga nóg. Hún hafi miklar áhyggjur af stöðu innanlandsflugsins. „
Innanlandsflugið er lífæð landsbyggðar og tryggir aðgengi að nauðsynlegri þjónustu við fólk. Flugið er öryggismál og jafnréttismál til að jafna aðstöðumun milli íbúa sem annars búa til okkar góða samfélag. Loftbrúin hefur verið mikilvægur liður í því að tryggja nauðsynlegt aðgengi,“ skrifar María í færslu á Facebook. Breytingarnar, sem greint var frá í gær, felast í því að í stað þess að íbúar með lögheimili fyrir utan stórhöfuðborgarsvæðið fái fjörutíu prósenta afslátt af fluglegg innanlands fái þeir sjö þúsund krónur fyrir hvern legg. Þessi útfærsla hefur sætt gagnrýni. Þrátt fyrir að María sé í ríkisstjórnarflokki tekur hún undir þessa gagnrýni og segir að sjö þúsund krónur séu einfaldlega ekki nóg. Einnig hafi hún heyrt að gjaldskrá flugfélaganna hafi einungis hækkað eftir að Loftbrúin var sett á laggirnar og missi því úrræðið marks. Núna þurfi hún og aðrir þingmenn að leggja við hlustir og tala fyrir því að útfærslan verði endurskoðuð. „Ég hef áhyggjur af stöðu innanlandsflugsins. Það var bagalegt hvernig útboðið í fyrra fór. Þar var skortur á samkeppni á markaðnum ákveðin orsök og nú blasir við fækkun flugferða sem er ekkert annað en skerðing á frelsi og lífsgæðum íbúa sem þurfa gjarnan að sækja vinnu eða þjónustu til höfuðborgarsvæðisins,“ skrifar hún. „Það er alveg ljóst í mínum huga að það þarf að endurskoða þetta fyrirkomulag.“ Þar með tekur hún undir orð Ingvars Þóroddssonar, samflokksmanns hennar, sem sagði hið sama í viðtali við mbl.
Byggðamál Samgöngumál Viðreisn Alþingi Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Sjá meira