Innlent

Telja brýnt að endur­skoða fækkun lögregluembætta

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Lögreglufélag Vestfjarða lýsir áhyggjum af því að með fyrirætlunum dómsmálaráðherra um sameiningu lögregluembætta færist stjórnun og ákvarðanataka um fjölda lögreglumanna, fjármuni og forgangsröðun verkefna fjær starfssvæðinu.
Lögreglufélag Vestfjarða lýsir áhyggjum af því að með fyrirætlunum dómsmálaráðherra um sameiningu lögregluembætta færist stjórnun og ákvarðanataka um fjölda lögreglumanna, fjármuni og forgangsröðun verkefna fjær starfssvæðinu. Vísir/Vilhelm

Lögreglufélag Vestfjarða lýsir áhyggjum af fyrirhugaðri fækkun lögregluembætta úr níu í þrjú og telur brýnt að endurskoða fyrirætlanir dómsmálaráðherra. Það telur það ekki séð hvernig breytingarnar muni bæta löggæslu á landsbyggðinni og tryggja öryggi.  

„Vestfirðir eru víðfeðmt og krefjandi starfssvæði þar sem miklar vegalengdir, erfiðar samgöngur og veðurfar gera oft og tíðum miklar og sérhæfðar kröfur til löggæslu,“ segir í ályktun Lögreglufélags Vestfjarða sem undirrituð var í gær. 

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra kynnti breytingarnar upprunalega í vor en frumvarpið verður lagt fram í nóvember. Áformað er að fækka lögregluembættum um sex talsins og hefur ráðherra sagt skýrt að áformin feli ekki í sér fækkun lögreglustöðva eða lögreglumanna. Þvert á móti sé ætlunin að fjölga lögreglumönnum og þá eigi breytingarnar að styðja betur við störf lögreglu í landinu.

Sjá einnig: Lög­reglu­em­bættum fækkað veru­lega

Lögreglufélag Vestfjarða taki undir mikilvægi þess að efla faglega getu og sérhæfingu lögreglu en telji ekki séð hvernig breytingarnar muni bæta löggæslu á landsbyggðinni og tryggja öryggi lögreglumanna og almennings.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hyggst í nóvember leggja fram frumvarp til breytinga á lögreglulögum og gengið verður enn lengra í sameiningu lögregluembætta en áður stóð til.Vísir/Bjarni

Þá lýsi félagið áhyggjum af því að með sameiningu embætta færist stjórnun og ákvarðanataka fjær starfssvæðinu og jafnframt vakni spurningar um hvernig eigi að tryggja skjótan og fullnægjandi stuðnng þegar alvarleg eða umfangsmikil atvik komi upp. 

Sérstakar áhyggjur hefur félagið af því að sameining embætta leiði til fækkunar lögreglumanna á vöktum og skertrar þjónustu á afskekktum svæðum. 

Sjá einnig: Segir lög­reglu­menn á Vest­fjörðum á­hyggju­fulla

„Slík þróun gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir öryggi almennings sem og lögreglumanna þar sem aðstoð getur verið langt undan. Er slíkt ekki til þess fallið að styrkja lögregluna með neinum hætti né auka öryggi borgaranna,“ segir í ályktun félagsins. 

Félagið leggi áherslu á að raunveruleg efling lögreglunnar felist fyrst og fremst í fjölgun lögreglumanna og auknum fjármunum til löggæslu fremur en ekki stækkun embætta einnar og sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×