„Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Smári Jökull Jónsson skrifar 23. október 2026 20:00 Rjúpnaveiðitímabilið hefst í dag. Vísir/Vilhelm Rjúpnaveiðitímabilið hefst í dag um allt land en það stendur mislengi yfir eftir veiðisvæðum, lengst á Austurlandi eða til 22. nóvember. Varaformaður Skotvís segir mikilvægt að undirbúa veiðarnar vel en rjúpnaveiði snúist ekki um að veiða sem mest heldur um að eiga góðan dag á fjöllum.
Mikill áhugi sé á veiðunum. „Það hefur verið talsverð fjölgun af nýjum tilvonandi veiðimönnum sem hafa verið að koma á námskeið og taka bæði skotvopnaprófið og veiðikortanámskeið hjá okkur. Við sjáum að það er mikill áhugi og margir sem vildu einmitt klára fyrir rjúpuna,“ sagði Bjarnþóra María Pálsdóttir, varaformaður Skotvís, í hádegisfréttum Bylgjunnar. Gott ef menn kunni að nota áttavita Hún hvetur nýliða til að fara með reyndari manni í fyrstu veiðiferð en að undirbúningurinn heima skipti mestu máli. „Það er ýmislegt sem þarf að hafa í huga líka og við þurfum að vita hvar við megum veiða. Við megum ekki bara rölta upp á næstu heiði og byrja að skjóta rjúpu. Við þurfum að kynna okkur það vel og ég mæli með heimasíðu Náttúruverndarstofnunar. Þar er kort á vefsjá og hægt að afla sér upplýsinga.“ Mikilvægt sé að veiðimenn séu sýnilegir og vel búnir og Bjarnþóra segir betur heima setið en af stað farið sé veðurspá slæm. „Veiðivestin eru oft mjög sýnileg og flott og svo er gott að vera með aukasokka og vettlinga í töskunni. Ef menn kunna að nota áttavita þá gæti verið sniðugt að hafa hann með ef síminn verður batteríslaus.“ „Skotvís hefur verið að auka veiðidaga talsvert og þetta er ekki spurning um að maður verði að fara einhvern einn ákveðinn dag, það eru margir dagar í boði í haust.“ Þurfi að haga sér þannig að öðrum standi ekki ógn af Þá eigi alltaf að umgangast skotvopn eins og það sé hlaðið og beina hlaupi frá ef maður mæti öðrum veiðimönnum. „Það skiptir máli að haga sér alltaf með þeim hætti að fólki standi ekki ógn af manni. Þú ert kannski að mæta veiðimanni sem þú þekkir ekki og veist ekkert hver þetta er, þá vill maður bara vera rólegur þegar maður er að mæta fólki með byssu á öxlinni.“ Rjúpnaveiðin sé fyrir mörgum fyrsta skrefið í undirbúningi jólahátíðarinnar en sölubann er í gildi og Bjarnþóra hvetur fólk til að sýna hófsemi í veiðum. „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur heldur að eiga góðan dag á fjöllum. Þetta er bara einstök upplifun að vera þarna í faðmi fjallanna eins og maður segir. Þeir sem hafa gengið til rjúpna uppi á heiði í fallegu vetrarveðri, þeir skilja þetta.“
Rjúpa Skotveiði Umhverfismál Jól Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira