Innlent

Hörður Arnars­son og náttúru- og inn­viða­gjald á Sprengi­sandi

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Góðir gestir á Sprengisandi í dag.
Góðir gestir á Sprengisandi í dag. Samsett

Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni í dag en þar fær Páll Magnússon þáttastjórnandi til sín góða gesti og ræðir við þá samfélagsmálin sem brenna á þjóðinni.

Fyrsti gestur Páls verður Dr. Hafsteinn Dan Kristjánsson, lagaprófessor. Hann hefur meðal annars kennt Evrópu- og stjórnsýslurétt við Oxford-háskóla og ætla þeir að gera tilraun til þess að ræða bókun 35 á mannamáli. Er á ferðinni spurning um sjálft fullveldi og sjálfstæði Íslands?

Nýlega vakti tilkynning um snöggt brotthvarf Harðar Arnarssonar úr forstjórastóli Landsvirkjunar mikla athygli eftir 17 farsæl ár í starfi. Ekki síst þykir undarlegt að enginn málsaðila – fjármálaráðherra, stjórnarformaðurinn eða forstjórinn fráfarandi – hefur fengist til að gefa upp raunverulegar ástæður fyrir þessari atburðarás. Hörður verður í ítarlegu viðtali á eftir.

Þá koma Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formaður þingflokksins hjá Flokki fólksins, í hljóðverið til Páls. Báðar eru þær þingmenn Suðurkjördæmis þar sem meðal annars er að finna Bláskógabyggð – en inn í það tæplega 1500 manna sveitarfélag ætlar ríkisstjórnin að sækja 5 milljarða með svokölluðu náttúru-og innviðagjaldi strax á næsta ári. Þetta nemur öllum áætluðum afgangi af ríkissjóði samkvæmt fjárlagafumvarpinu. 

Síðast en ekki síst tekur Páll á móti Össuri Skarphéðinssyni, fyrrverandi utanríkisráðherra og formanni Samfylkingarinnar. Þeir láta vaða á súlum og ræða það sem efst er á baugi í pólitíkinni. 

Hægt er að hlusta á Sprengisand í beinni útsendingu í spilaranum hér að neðan eða á Bylgjunni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×