Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. október 2026 08:02 Sigurður Ragnar Eyjólfsson er á góðri leið með að gera NSÍ Runavík að meisturum á fyrsta ári. @nsirunavikfc Þetta er stór dagur fyrir fótboltafélagið NSÍ og allt fólkið sem býr í Runavík í Færeyjum. Karlalið félagsins getur orðið Færeyjameistari í dag.
Íslenski þjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson fór í víking fyrir ári síðan og tók að sér að vera þjálfari NSÍ Runavíkur. Í dag getur hann skilað þessum litla bæ á Austurey aðeins öðrum meistaratitlinum í 69 ára sögu félagsins. Það eru nítján ár síðan fyrsti og eini titilinn kom í hús eða árið 2007. Á þeim tíma var Sigurður Ragnar sjálfur að gera frábæra og sögulega hluti með íslenska kvennalandsliðinu. Nú tók hann við liði sem endaði í þriðja sæti í deildinni á eftir KÍ Klaksvík og HB Þórshöfn. NSÍ er með sex stiga forskot á KÍ Klaksvík þegar tvær umferðir eru eftir. Liðinu nægir því í raun jafntefli á móti HB Þórshöfn í dag en lokaumferðin fer fram um næstu helgi. Leikurinn í dag er síðasti heimaleikur NSÍ en síðasti leikurinn er á móti B68 Toftir sem er hitt liðið á Austurey. Það er gríðarlegur áhugi á leiknum í dag og búist við miklum fólksfjölda í þessum litla bæ sem telur undir þúsund íbúa en það eru þó yfir fjögur þúsund manns sem búa á svæðinu í kringum bæinn. View this post on Instagram A post shared by NSÍ Runavík FC (@nsirunavikfc) View this post on Instagram A post shared by NSÍ Runavík FC (@nsirunavikfc)
Færeyski boltinn Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Fótbolti Bruno settur á bekkinn Enski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Fleiri fréttir Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Real Sociedad - Levante | Heldur Orri áfram að skora? Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Sjá meira