Fótbolti

Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Freyr Alexandersson er að gera flotta hluti með Rosenborg í norsku deildinni.
Freyr Alexandersson er að gera flotta hluti með Rosenborg í norsku deildinni. EPA/Paul S. Amundsen

Freyr Alexandersson og lærsveinar hans í Rosenborg unnu 3-0 sigur á HamKam í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Rosenborg er því komið með 40 stig eða jafnmörg og Molde og Tromsø í baráttunni um bronsið í deildinni og sæti í Evrópukeppni á næsta tímabili. Tromsø og Molde eiga þó leik til góða á Rosenborg.

Sigurinn þýðir að Rosenborg heldur áfram á þeirri miklu uppleið sem liðið hefur verið á eftir að Freyr Alexandersson tók við þjálfuninni.

„Það er frábært að vinna góðan sigur í erfiðum leik að mörgu leyti. Mér finnst við spila mjög vel en HamKam var harðsnúið lið og komst fyrir mörg skot í fyrri hálfleik,“ sagði Freyr við TV 2 eftir leikinn.

Rosenborg var samt nálægt því að lenda í alvarlegum vandræðum þegar markvörðurinn Leopold Wahlstedt æddi inn í Aksel Potur eftir klukkutíma leik.

Brotið virtist eiga sér stað nákvæmlega á vítateigslínunni. Dómarinn Stian Røvig Sletner dæmdi aukaspyrnu, ákvörðun sem Varsjáin kaus að láta standa.

„Þetta er ekki í fyrsta skipti, og sennilega ekki það síðasta, sem VAR-ákvörðun fellur gegn okkur, svo það er ekkert nýtt. Svona er að vera botnlið. Allir sjá að þetta er innan teigs,“ sagði Fredrik Sjølstad, fyrirliði HamKam, við TV 2.

Þegar Rosenborg komst yfir var það Lucas Mares sem var óheppinn og setti boltann í eigið mark eftir 69 mínútur. Mares fékk fyrst boltann í höndina áður en hann potaði honum inn fram hjá eigin markverði.

Fimm mínútum síðar skoraði Amin Chiakha og kom stöðunni í 2–0, en það var fimmtánda mark markahæsta leikmanns úrvalsdeildarinnar það sem af er tímabili.

Emil Konradsen Ceide lagði upp annað markið. Á lokamínútu leiksins innsiglaði Ceide sjálfur sigurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×