Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Pálmi Þórsson skrifar 23. október 2026 22:11 Sigurður Pétursson átti frábæran leik í kvöld og hefur aldrei skorað meira í einum leik í efstu deild. Vísir/Guðmundur Álftnesingar sigruðu Keflvíkinga 130-110 í hröðum og stórskemmtilegum leik í kvöld. Keflvíkingar komu sterkari til leiks en Álftnesingar voru með fá svör varnarlega og þá sérstaklega við honum Jamir Chaplin sem dró vagninn með 29 stig ásamt Hilmari Péturssyni sem var með 32 stig fyrir Keflavík. Keflvíkingar komust mest í 9 stiga forystu í 1. leikhluta sem þeir virtust ætla að bæta við en þegar einungis 1. mínúta var eftir af 1. leikhlutanum náðu Álftnesingar að drepa hana niður í 3 stig. Staðan eftir 1. leikhluta var því 29-32. 2. leikhluti fór aðeins hægar af stað en bæði lið skiptust á höggum. Ef annað liðið skoraði þá skoraði hitt og svo ef annað liðið náði stoppi. Það gerðist alveg eins hinum megin og staðan í hálfleik var 63-61. Það var mikið skorað en leikurinn var líka hraður og mikið af skotum sem voru tekin. Hilmar Pétursson lék vel með Keflavíkurliðinu í kvöld.Vísir/Guðmundur Í seinni hálfleik var svipað upp á teningnum. Bæði lið skiptust á körfum og stefndi leikurinn í að verða mjög spennandi. Þegar 25. sekúndur voru eftir af 3. leikhluta komst Hilmar Pétursson á vítalínuna og kom Keflvíkingum í stöðuna 92-93. Álftnesingar fara hinum megin í sókn sem endar með þrist frá bróður hans og staðan eftir 3. leikhluta var 95-93 og þakið á Kaldalónshöllinni ætlaði af. Þetta skilaði sér inn í 4. leikhluta fyrir heimamenn sem tóku öll völd leiddir af Sigurði Péturssyni sem skoraði 36 stig og stal boltanum 5 sinnum. Þeir byggðu upp forskot hægt og rólega á meðan gestirnir reyndu að skjóta sig inn í leikinn aftur sem heppnaðist ekki. Lokatölur 130-110 virkilega sterkur sigur Álftnesinga sem stóðust fyrsta stóra prófið. Luka Gasic skoraði 13 stig fyrir Álftanes í kvöld.Vísir/Guðmundur Atvik leiksins Atvik leiksins er byrjunin á 4. leikhluta en þá komust Álftnesingar í 10 stiga forystu á aðeins 2 mínútum. Eftir það sáu Keflvíkingar ekki til sólar eftir að hafa spilað afar góðan leik upp að því. Stjörnur og skúrkar Stjörnur þessa leiks voru Pétursson. Annars vegar stóri bróðir hans Hilmar Pétursson og litli bróðir hans Sigurður Pétursson. Litli bróðir hafði betur í þetta skiptið bæði í stigaskori og í leiknum sjálfum. Skúrkurinn er sennilega formið á Jamir Chaplin en hann fékk krampa rétt áður en Álftanes tók yfir og var lítið með í 4. leikhluta. Dómarar Jóhannes Páll, Bjarni Hliðkvist og Sigurbaldur voru með flautuna í þessum leik. Þeir stóðu sig bara með prýði en línan hjá þeim færðist svolítið til en það var ekkert til að kvarta yfir þannig séð. Stemning og umgjörð Stemningin í Kaldalónshöllinni var fyrirmynd. DJ á svæðinu. Hamborgarar á grillinu og nánast fullt hús. Þeir kunna þetta á Álftanesinu. Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Álftanessliðsins,Vísir/Guðmundur Baldur: „Gátum ekki stoppað Chaplin” Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Álftanessliðsins, var að vonum kampakátur með að hafa unnið leikinn á móti Keflavík í kvöld. „Ég er bara ánægður með að hafa unnið í erfiðum leik,” sagði Baldur strax eftir leik. „Við vorum að fá á okkur 30 stig í leikhluta en fáum á okkur 17 í fjórða og náum stoppum. Þeir misstu Chaplin út. Hann er elítuspilari og það hjálpaði þeim ekki. Það hjálpaði okkur. Hann var frábær og við réðum ekki við hann. Hilmar var líka frábær, báðir í 30 stigum. Varnarleikurinn okkar réði illa við þessa leikmenn og Keflavík var frábær sóknarlega,” bætti Baldur svo við en góður sóknarleikur var einmitt svolítið lykilorðið í þessum leik. Bæði lið voru frábær sóknarlega en til þess að vinna leiki þurfa lið að geta stoppað frábær sóknarlið en Álftanes skoraði síðan 130 stig hinum megin. „Hvort sem það var hálfur völlur, transition eða hvað sem það var þá var það frábært flæði, frábær samvinna og góð hittni. Ekkert til að kvarta yfir á sóknarvelli. Bara vel spilaður leikur þeim megin á vellinum. Það hljóta að vera einhverjir ánægðir með þetta á föstudagskvöldi,” sagði Baldur. Næsta próf er á móti Tindastóli fyrir norðan. Hvað ætlar Baldur að taka með sér úr þessum leik yfir í hann? „Það er bara það sama gamla. Fer yfir varnarleikinn og hvað við getum lært af því. Fer yfir sóknarleikinn og tek bara eitthvað gott úr því. Svo bara eru Stólarnir annað lið og við bara undirbúum hvað þeir eru að gera. Það verður bara krefjandi eins og alltaf,“ sagði Baldur. Bónus-deild karla UMF Álftanes Keflavík ÍF