Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 22. október 2026 21:07 DeAndre Kane og félagar í Grindavík svöruðu fyrir bikartapið slæma í byrjun vikunnar. Vísir/Guðmundur Grindavík vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu er liðið lagði Stjörnuna í 3. umferð Bónus-deildar karla í kröfubolta í kvöld, 98-92. Það voru Stjörnumenn sem byrjuðu betur og náðu fljótt fimm stiga forskoti. Grindvíkingar sneru dæminu hins vegar við um miðbik 1. leikhluta og leiddu að honum loknum með fimm stigum. Stjörnumönnum gekk svo bölvanlega að koma boltanum í körfuna framan af 2. leikhluta og Grindvíkingar gengu á lagið. Mestur varð munurinn 15 stig, en gestirnir úr Garðabænum fundu loks taktinn varnarlega og náðu nokkrum auðveldum körfum í kjölfarið. Stjörnumenn skoruðu svo síðustu fimm stig fyrri hálfleiksins og minnkuðu muninn niður í sex stig, staðan 52-46 þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja. Liðin skiptust svo á að skora stærstan hluta 3. leikhluta. Stjörnumenn náðu nokkrum litlum áhlaupum á Grindvíkinga, en heilt yfir náðu heimamenn að halda gestunum í hæfilegri fjarlægð, þó svo að Stjarnan hafi á einum tímapunkti náð að minnka muninn niður í þrjú stig. Það sama var uppi á teningnum í 4. leikhluta, nema í þetta sinn komst Stjarnan í raun aldrei nógu nálægt til að ógna forskoti Grindvíkinga af einhverju viti. Gestirnir náðu smá áhlaupi undir lok leiks, en þá var það orðið of seint og Grindvíkingar fögnuðu að lokum sex stiga sigri, 98-92. Atvik leiksins Hinn fertugi Jeremy Pargo sýndi það enn og sannaði að lengi lifir í gömlum glæðum. Eitt stykki flautuþristur seint í 3. leikhluta þegar skotklukkan var að renna út kveikti heldur betur í heimamönnum og þeirra stuðningsfólki. Stjörnur og skúrkar Mirza Bulic var að öðrum ólöstuðum besti maður vallarins í kvöld. Hann skilaði 22 stigum og 15 fráköstum fyrir Grindvíkinga, en DeAndre Kane var stigahæsti maður liðsins með 23 stig. Í liði Stjörnunnar voru þeir Hilmar Smári Henningsson og Nojel Eastern stigahæstir með 20 stig hvor. Hilmar Smári hefur þó oft átt betri daga en í leik kvöldsins, en hann var aðeins með 29 prósent skotnýtingu. Dómararnir Þeir Sigmundur Már Herbertsson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson og Bergur Daði Ágústsson fengu nokkuð snúið verkefni í kvöld. Það var einhver spenna í loftinu, þó svo að ekki hafi soðið upp úr. Leikmenn, þjálfarar og stuðningsmenn beggja liða fannst líklega nokkuð oft á sig halla, en heilt yfir má segja að þeir félagar hafi komist sæmilega frá verkefninu. Stemning og umgjörð Mætingin í Grindavík hefur oft verið betri en í kvöld, en þrátt fyrir það var stemningin nokkuð góð. Áhorfendur létu vel í sér heyra og umgjörð þeirra gulu var til fyrirmyndar. Körfubolti Bónus-deild karla Stjarnan UMF Grindavík