Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Tómas Arnar Þorláksson skrifar 22. október 2026 15:02 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er utanríkisráðherra. vísir/ívar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var erlendis samtals í 100 daga á síðasta ári og fór í 27 ferðir. Það sem af er þessu ári hefur hún samtals verið erlendis í 63 daga og farið í sautján ferðir.
Þetta kemur fram í skriflegu svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu. Samkvæmt útreikningi fréttastofu nemur meðaltal fjarveru utanríkisráðherra síðustu þrettán ár tæplega 95 dögum. Metið á Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sem var 116 daga erlendis árið 2022. Neðar í fréttinni má sjá samantekt um veru utanríkisráðherra erlendis frá árinu 2011 til ársins í ár. Í svari ráðuneytisins er ekki talin með ferð Þorgerðar til Víetnam þar sem hún er stödd núna til að undirrita fríverslunarsamning. Í útreikningnum fréttastofu eru undanskilin árin 2020 og 2021 þegar heimsfaraldur Covid-19 gekk yfir. Eðli málsins samkvæmt var lítið um utanlandsferðir á því tímabili en Þórdís Kolbrún og Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrverandi utanríkisráðherrar Sjálfstæðisflokksins, voru á þessum tveimur árum samtals 39 daga erlendis. Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar í síðustu viku og hefur sagt í viðtölum að skortur á forystu og samtali við leiðtoga flokksins spili þar stórt hlutverk. Samkvæmt yfirliti yfir ferðir utanríkisráðherra fyrir síðustu fimmtán ár eru utanlandsferðir í embættinu nokkuð tíðar og ætti fjarvera utanríkisráðherra að koma fáum í opna skjöldu. Ekki jafn vinsælt og áður að formenn gegni embættinu Þess má geta að það hefur þó nokkrum sinnum gerst í íslenskri stjórnmálasögu að formaður stjórnmálaflokks gegni á sama tíma embætti utanríkisráðherra til lengri tíma. Það hefur þó ekki verið mikið um það síðustu 20 ár. Bjarni Benediktsson var síðast í þeirri stöðu en hann var bæði formaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra frá október 2023 til apríl 2024. Þá fór Bjarni í samtals átta ferðir og var úti í 30 daga. Leita þarf þó nokkur ár aftur í tímann til að finna annað dæmi um utanríkisráðherra sem er jafnframt formaður stjórnmálaflokks en það gerði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 2007 til 2009. Geir G. Haarde var einnig utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins frá október 2005 til júní 2006. Davíð Oddsson tók svipað skrans á utanríkisráðuneytið sem formaður Sjálfstæðisflokksins 2004 til 2005. Metið á Halldór Ásgrímsson sem var formaður Framsóknarflokksins og utanríkisráðherra frá 1995 til 2004. Jón Baldvin Hannibalsson átti einnig nokkuð langt tímabil þegar hann var formaður Alþýðuflokksins og utanríkisráðherra frá 1988 til 1995. Fleiri dæmi eru fyrir aldamót en þar má nefna Steingrím Hermannsson, fyrrverandi formann Framsóknarflokksins, Geir Hallgrímsson, fyrrverandi formann Sjálfstæðisflokksins, Benedikt Gröndal, fyrrverandi formann Alþýðuflokksins, Emil Jónsson, fyrrverandi formann Alþýðuflokksins, Ólaf Thors, fyrrverandi formann Sjálfstæðisflokksins, Stefán Jóhann Stefánsson, fyrrverandi formann Alþýðuflokksins. Gunnar Bragi mikið erlendis en Þórdís á metið Ef sjónum er beint að ferðum fyrrverandi utanríkisráðherra taka glöggir eftir því að ferðir dragast saman á kosningaárum. Hér fyrir neðan má sjá tæmandi lista yfir ferðir og heildarfjölda daga sem utanríkisráðherrar voru erlendis eftir árum: 2026 - Þorgerður Katrín: 17 ferðir og 63 dagar. 2025 - Þorgerður Katrín: 27 ferðir og 100 dagar. 2024 - Þórdís Kolbrún og Bjarni Benediktsson: 22 ferðir og 82 dagar. 2023 - Þórdís Kolbrún og Bjarni Benediktsson: 23 ferðir og 82 dagar. 2022 - Þórdís Kolbrún: 26 ferðir og 116 dagar. 2021 - Þórdís Kolbrún og Guðlaugur Þór: 6 ferðir og 22 dagar. 2020 - Guðlaugur Þór: 5 ferðir og 17 dagar. 2019 - Guðlaugur Þór: 26 ferðir og 92 dagar. 2018 - Guðlaugur Þór: 29 ferðir og 99 dagar. 2017 - Guðlaugur Þór: 28 ferðir og 99 dagar. 2016 - Gunnar Bragi og Lilja Dögg Alfreðsdóttir: 19 ferðir og 81 dagur. 2015 - Gunnar Bragi: 23 ferðir og 113 dagar. 2014 - Gunnar Bragi: 25 ferðir og 113 dagar. 2013 - Gunnar Bragi og Össur Skarphéðinsson: 19 ferðir og 74 dagar. 2012 - Össur Skarphéðinsson, 15 ferðir og 37 dagar. 2011 - Össur Skarphéðinsson, 19 ferðir og 51 dagur. Fréttin hefur verið uppfærð. Upphaflega stóð að Gunnar Bragi og Guðlaugur Þór hafi verið utanríkisráðherrar árið 2016 en rétt er að Lilja Dögg Alfreðsdóttir tók við af Gunnari Braga tímabundið árið 2016.
Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Viðreisn Úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Sjá meira