Innlent

Fjar­vera Þor­gerðar á pari við for­vera hennar

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er utanríkisráðherra.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er utanríkisráðherra. vísir/ívar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var erlendis samtals í 100 daga á síðasta ári og fór í 27 ferðir. Það sem af er þessu ári hefur hún samtals verið erlendis í 63 daga og farið í sautján ferðir.

Þetta kemur fram í skriflegu svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu. Samkvæmt útreikningi fréttastofu nemur meðaltal fjarveru utanríkisráðherra síðustu þrettán ár tæplega 95 dögum. Metið á Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sem var 116 daga erlendis árið 2022. 

Neðar í fréttinni má sjá samantekt um veru utanríkisráðherra erlendis frá árinu 2011 til ársins í ár. Í svari ráðuneytisins er ekki talin með ferð Þorgerðar til Víetnam þar sem hún er stödd núna til að undirrita fríverslunarsamning.

Í útreikningnum fréttastofu eru undanskilin árin 2020 og 2021 þegar heimsfaraldur Covid-19 gekk yfir. Eðli málsins samkvæmt var lítið um utanlandsferðir á því tímabili en Þórdís Kolbrún og Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrverandi utanríkisráðherrar Sjálfstæðisflokksins, voru á þessum tveimur árum samtals 39 daga erlendis.

Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar í síðustu viku og hefur sagt í viðtölum að skortur á forystu og samtali við leiðtoga flokksins spili þar stórt hlutverk. Samkvæmt yfirliti yfir ferðir utanríkisráðherra fyrir síðustu fimmtán ár eru utanlandsferðir í embættinu nokkuð tíðar og ætti fjarvera utanríkisráðherra að koma fáum í opna skjöldu.

Ekki jafn vinsælt og áður að formenn gegni embættinu

Þess má geta að það hefur þó nokkrum sinnum gerst í íslenskri stjórnmálasögu að formaður stjórnmálaflokks gegni á sama tíma embætti utanríkisráðherra til lengri tíma. Það hefur þó ekki verið mikið um það síðustu 20 ár. 

Bjarni Benediktsson var síðast í þeirri stöðu en hann var bæði formaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra frá október 2023 til apríl 2024. Þá fór Bjarni í samtals átta ferðir og var úti í 30 daga.

Leita þarf þó nokkur ár aftur í tímann til að finna annað dæmi um utanríkisráðherra sem er jafnframt formaður stjórnmálaflokks en það gerði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 2007 til 2009. Geir G. Haarde var einnig utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins frá október 2005 til júní 2006. Davíð Oddsson tók svipað skrans á utanríkisráðuneytið sem formaður Sjálfstæðisflokksins 2004 til 2005. 

Metið á Halldór Ásgrímsson sem var formaður Framsóknarflokksins og utanríkisráðherra frá 1995 til 2004. Jón Baldvin Hannibalsson átti einnig nokkuð langt tímabil þegar hann var formaður Alþýðuflokksins og utanríkisráðherra frá 1988 til 1995. 

Fleiri dæmi eru fyrir aldamót en þar má nefna Steingrím Hermannsson, fyrrverandi formann Framsóknarflokksins, Geir Hallgrímsson, fyrrverandi formann Sjálfstæðisflokksins, Benedikt Gröndal, fyrrverandi formann Alþýðuflokksins, Emil Jónsson, fyrrverandi formann Alþýðuflokksins, Ólaf Thors, fyrrverandi formann Sjálfstæðisflokksins, Stefán Jóhann Stefánsson, fyrrverandi formann Alþýðuflokksins.

Gunnar Bragi mikið erlendis en Þórdís á metið

Ef sjónum er beint að ferðum fyrrverandi utanríkisráðherra taka glöggir eftir því að ferðir dragast saman á kosningaárum. Hér fyrir neðan má sjá tæmandi lista yfir ferðir og heildarfjölda daga sem utanríkisráðherrar voru erlendis eftir árum:

  • 2026 - Þorgerður Katrín: 17 ferðir og 63 dagar.
  • 2025 - Þorgerður Katrín: 27 ferðir og 100 dagar.
  • 2024 - Þórdís Kolbrún og Bjarni Benediktsson: 22 ferðir og 82 dagar.
  • 2023 - Þórdís Kolbrún og Bjarni Benediktsson: 23 ferðir og 82 dagar.
  • 2022 - Þórdís Kolbrún: 26 ferðir og 116 dagar.
  • 2021 - Þórdís Kolbrún og Guðlaugur Þór: 6 ferðir og 22 dagar.
  • 2020 - Guðlaugur Þór: 5 ferðir og 17 dagar. 
  • 2019 - Guðlaugur Þór: 26 ferðir og 92 dagar.
  • 2018 - Guðlaugur Þór: 29 ferðir og 99 dagar.
  • 2017 - Guðlaugur Þór: 28 ferðir og 99 dagar. 
  • 2016 - Gunnar Bragi og Lilja Dögg Alfreðsdóttir: 19 ferðir og 81 dagur.
  • 2015 - Gunnar Bragi: 23 ferðir og 113 dagar.
  • 2014 - Gunnar Bragi: 25 ferðir og 113 dagar.
  • 2013 - Gunnar Bragi og Össur Skarphéðinsson: 19 ferðir og 74 dagar.
  • 2012 - Össur Skarphéðinsson, 15 ferðir og 37 dagar.
  • 2011 - Össur Skarphéðinsson, 19 ferðir og 51 dagur.

Fréttin hefur verið uppfærð. Upphaflega stóð að Gunnar Bragi og Guðlaugur Þór hafi verið utanríkisráðherrar árið 2016 en rétt er að Lilja Dögg Alfreðsdóttir tók við af Gunnari Braga tímabundið árið 2016.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×