Innlent

Seðla­bankinn lagði Þor­stein Má

Árni Sæberg skrifar
Þorsteinn Már Baldvinsson var forstjóri Samherja þegar rannsókn Seðlabankans á fyrirtækinu stóð yfir.
Þorsteinn Már Baldvinsson var forstjóri Samherja þegar rannsókn Seðlabankans á fyrirtækinu stóð yfir. Vísir/Vilhelm

Seðlabanki Íslands hefur verið sýknaður af öllum kröfum Þorsteins Más Baldvinssonar, fyrrverandi forstjóra og stærsta eiganda Samherja. Hann krafðist miskabóta úr hendi Seðlabankans vegna meintrar ólögmætrar meðferðar persónuupplýsinga um hann, sem aflað var með húsleit árið 2012.

Dómur þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun og Mbl greinir frá niðurstöðunni. 

Málið varðaði upplýsingar sem var að finna á þremur hörðum diskum. Þessara upplýsinga var aflað í frægri húsleit á skrifstofum Samherja í mars 2012 vegna gruns um brot félagsins á gjaldeyrislögum. Þar var lagt hald á mikið magn gagna og afrit af þeim var geymt í þessum hörðu diskunum.

Þorsteinn Már vildi meina að í þessum gögnum hefði verið að finna persónulegar upplýsingar um hann og því taldi hann sig eiga rétt til miskabóta. Persónuvernd komst að þeirri niðurstöðu árið 2021 að Seðlabankinn hefði ekki brotið persónuverndarlög með því að eyða ekki gögnunum eftir að rannsókn bankans á Þorsteini Má og Samherja lauk.

Máli Seðlabanka, Samherja og Þorsteins Más lauk þegar Hæstiréttur felldi úr gildi 15 milljóna króna sekt á hendur Samherja og Þorsteini fyrir meint brot á gjaldeyrislögum. Bankanum var í kjölfarið gert að greiða Þorsteini Má 2,5 milljónir króna í miskabætur.

Uppfært klukkan 11:15: 

Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur hefur nú verið birtur og hann má lesa hér.

Í stuttu máli var niðurstaða dómsins sú að ekki verði sé að sök starfsmanna Seðlabankans hefði verið sönnuð, hvað þá að um hafi verið að ræða ásetning eða stórfellt gáleysi, líkt og áskilið er í skaðabótalögum. Á sama hátt verði ekki talið sannað að háttsemi starfsmannanna hafi verið ólögmæt. 

Þá verði eigi heldur séð að Þorsteinn Már hafi sýnt fram á það að hann hafi orðið fyrir ófjárhagslegu tjóni (miska) vegna háttsemi starfsmanna Seðlabankans á því tímabili sem um ræðir í málinu. Orsakasamband á milli meints tjóns og meintrar saknæmrar og ólögmætrar háttsemi starfsmannanna hafi sömuleiðis ekki verið sannað, né að hið meinta tjón. Þorsteinn Már verði að bera halla af öllum þessum atriðum með hliðsjón af almennum reglum skaðabótaréttarins.

Því væru ekki efni til að dæma Þorsteini Má miskabætur á grundvelli ákvæðis skaðabótalaga um miskabætur, almennu skaðabótareglu sömu laga eða reglu skaðabótaréttarins um húsbóndaábyrgð, þar þar sem skilyrði þessara reglna um sök, ólögmæti, tjón, orsakasamband og sennilega afleiðingu væru ekki uppfyllt. Ekki væru heldur tilefni til að dæma honum miskabætur á grundvelli tiltekins ákvæðis persónuverndarlaga, þar sem það mæli ekki fyrir um rétt til skaðabóta vegna ófjárhagslegs tjóns.

Þá verði ekki séð að skilyrði séu til að fallast á miskabótakröfu Þorsteins Más á grundvelli almennu persónuverndarreglugerðar Evrópusambandsins, GDPR, að virtri þeirri niðurstöðu dómsins að vinnsla og varðveisla Seðlabankans á þeim gögnum sem geymd voru á hörðu diskunum þremur, þar með talið persónulegum gögnum og upplýsingum um Þorstein Má sem þar leyndust innan um önnur gögn, hafi verið heimil á tímabilinu frá 8. nóvember 2018 til 15. apríl 2020 og í samræmi við tilgreind ákvæði persónuverndarlaga og reglugerðarinnar, að teknu tilliti til skyldna Seðlabankans samkvæmt lögum um opinber skjalasögn. Þannig bresti það lagaskilyrði ákvæðis reglugerðarinnar um skaðabótaábyrgð að vinnslan hafi verið andstæð ákvæðum reglugerðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×