Sport

Dag­skráin: Körfuboltakvöld, enska deildin og Besta kvenna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Agla María Albertsdóttir tók við Íslandsskildinum sem fyrirliði Breiðabliks í fyrra og gerir það aftur í kvöld.
Agla María Albertsdóttir tók við Íslandsskildinum sem fyrirliði Breiðabliks í fyrra og gerir það aftur í kvöld. Vísir/Anton

Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á föstudögum en mikið er af körfubolta og fótbolta í beinni í kvöld.

Þriðju umferð Bónus deildar karla í körfubolta lýkur í kvöld með tveimur leikjum og á eftir mun Körfuboltakvöld fara yfir alla leikina á skemmtilegan hátt.

Stórleikur kvöldsins er þegar Álftanes tekur á móti Keflavík en bæði liðin hafa unnið tvo fyrstu leiki sína á leiktíðinni og aðeins annað verður ósigrað eftir leikinn.

Besta deild kvenna í fótbolta kveður í kvöld með þremur síðustu leikjunum en þar á meðal er einvígi tveggja efstu liðanna, Breiðabliks og FH. Blikakonur lyfta Íslandsbikarnum í leikslok og Bestu mörkin gera síðan upp alla lokaumferðina.

Við fáum líka leik í ensku úrvalsdeildinni, tvö golfmót og þá eru æfingar hafnar fyrir Formúlu 1 í Texas.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

Sýn Sport Ísland

Klukkan 17.30 hefst bein útsending frá leik Breiðabliks og FH í Bestu deild kvenna í fótbolta.

Klukkan 20.15 hefjast Bestu mörkin þar sem farið verður yfir lokaumferð Bestu deildar kvenna í fótbolta.

Sýn Sport Ísland 2

Klukkan 20.00 hefst bein útsending frá leik Álftaness og Keflavíkur í Bónus deild karla í körfubolta.

Klukkan 22.00 hefst Bónus Körfuboltakvöld þar sem farið verður yfir alla leikina í þriðju umferð Bónus deildar karla í körfubolta.

Sýn Sport Ísland 3

Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá leik Sindra og Tindastóls í Bónus deild karla í körfubolta.

Sýn Sport Ísland 4

Klukkan 17.50 hefst bein útsending frá leik ÍBV og Stjörnunnar í Bestu deild kvenna í fótbolta.

Sýn Sport Ísland 5

Klukkan 17.50 hefst bein útsending frá leik Þróttar á móti sameiginlegu liði Grindavíkur og Njarðvíkur í Bestu deild kvenna í fótbolta.

Sýn Sport

Klukkan 18.40 hefst bein útsending frá leik Ipswich og Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Sýn Sport 2

Klukkan 16.35 hefst bein útsending frá leik Rauðu Stjörnunnar og FCK í Sambandsdeildinni í fótbolta.

Sýn Sport 4

Klukkan 03.00 hefst bein útsending frá Genesis Championship-golfmótinu á DP World Tour.

Sýn Sport 5

Klukkan 02.00 hefst bein útsending frá BMW Ladies Championship-golfmótinu á LPGA-mótaröðinni.

Sýn Sport Viaplay

Klukkan 17.25 hefst bein útsending frá fyrstu æfingu fyrir Formúlu 1-kappaksturinn í Texas í Bandaríkjunum.

Klukkan 20.55 hefst bein útsending frá fyrstu æfingu fyrir Formúlu 1-kappaksturinn í Texas í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×