Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. október 2026 20:50 Orri Steinn Óskarsson skoraði í öðrum leiknum í röð í kvöld. EPA/JAVIER ETXEZARRETA Íslenski landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson var á skotskónum í kvöld í stórsigri Real Sociedad í Evrópudeildinni. Real Sociedad mætti til Noregs og burstaði heimamenn í Lilleström 6-0. Orri Steinn byrjaði á varamannabekknum en var fljótur að skora eftir að hann kom inn á völlinn sem varamaður. Orri kom inn á á 58. mínútu og kom Real Sociedad í 4-0 sex mínútum síðar. Orri leysti af fyrirliðann Mikel Oyarzabal sem hafði lagt upp þrjú mörk í fyrri hálfleik, tvö fyrir Sergio Gómez og eitt fyrir Luka Sucic. Eftir mark Orra bætti Sucic við sínu öðru marki áður en annar varamaður, Arsen Zakharyan, skoraði stuttu eftir að hafa komið inn á völlinn. Þetta var fyrsti sigur Real Sociedad í Evrópudeildinni á tímabilinu en liðið var með eitt stig í fyrstu tveimur leikjum sínum. Orri var að skora í öðrum leiknum í röð og sitt þriðja mark fyrir spænska liðið á leiktíðinni. Fótbolti Evrópudeild UEFA Íslendingar erlendis