„Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. október 2026 06:30 Kevin De Bruyne fagnar marki með liðsfélaga sínum hjá Napoli. AP/Alessandro Garofalo Áhugafólk um ensku úrvalsdeildina þekkir vel til Kevin De Bruyne sem var lykilmaður í sigurgöngu Manchester City. Margir líta ekki á hann sem sama leikmann og áður enda aldurinn farinn að færast yfir Belgann en það lítur út fyrir að nýr þjálfari hans hjá Napoli hafi fundið nýjan stað fyrir hann að blómstra á.
Massimiliano Allegri, þjálfari Napoli, stillti De Bruyne upp sem eina djúpa leikstjórnandanum sínum gegn norska félaginu Bodö/Glimt og kom Napoli aftur á skrið í Meistaradeildinni með 4-3 sigri. Blaðamaður La Gazzetta dello Sport segir tilfærsluna á De Bruyne vera sannkallað snilldarbragð. Hann telur þetta vera vendipunkt sem gæti mótað seinni hluta ferils Belgans upp á nýtt. Eins og Andrea Pirlo De Bruyne sem leikstjórnandi eins og Andrea Pirlo á sínum tíma var hugmynd sem Max hafði gengið með um nokkurt skeið og gegn Bodö beitti hann henni í fyrsta sinn frá fyrstu mínútu. Áður hafði Kevin stundum fært sig aftar, en alltaf við hlið varnartengiliðar. Kevin De Bruyne les leikinn vel og er með frábærar sendingar upp völlinn. Það hentar honum vel að færa sig aftar á völlinn þegar hann hefur misst hraða.AP/Alessandro Garofalo Í þetta skiptið var De Bruyne eini djúpi leikstjórnandinn, með tvo sanna teig-í-teig-miðjumenn sér við hlið, André-Frank Zambo Anguissa og Scott McTominay. „Það er ekkert leyndarmál að De Bruyne vildi helst spila framar, eins og hann hefur ítrekað nokkrum sinnum. Staðreyndirnar sýndu þó að Max hafði rétt fyrir sér og þegar upp var staðið skemmti Belginn sér líka,“ skrifaði ítalski blaðamaðurinn Vincenzo D'Angelo. Einstakur leikmaður „De Bruyne er einstakur leikmaður,“ ítrekaði Allegri eftir leikinn. „Ég sagði við hann: Þú munt sjá að þú átt eftir að njóta þess að spila sem djúpur leikstjórnandi.“ Stuðningsmenn Napoli nutu þess svo sannarlega og liðsfélagar hans líka. „De Bruyne er ótrúlegur leikmaður, við erum himinlifandi að hafa hann. Við erum með frábæra miðju og við verðum að nýta hæfileika hans og okkar sem best,“ tók Scott McTominay undir, en hann skoraði sín fyrstu mörk á tímabilinu. Það kemur í ljós hvort Kevin skiptir um skoðun, ef til vill þegar hann sér hvernig hlutverkaskipti breyttu ferli margra fyrrverandi framúrskarandi sóknartengiliða sem urðu síðan einstakir djúpir leikstjórnendur. Eins og Andrea Pirlo hjá AC Milan, þökk sé innsæi Carlo Ancelotti, eða Hakan Calhanoglu hjá Internazionale, ein af ákvörðunum Simone Inzaghi sem endurskrifuðu nýlega sögu Internazionale. Stöðugt í hringiðu leiksins Fyrir framan vörnina getur De Bruyne sýnt gæði sendinga sinna, sloppið auðveldar undan pressu andstæðinganna og verið stöðugt í hringiðu leiksins. Í uppspilinu gegn Norðmönnunum byrjaði hann nánast sem miðvörður, með allan völlinn fyrir framan sig. Það var leið til að fá heildarmynd og velja hentugustu sendinguna í hverri stöðu. Langar sendingar þvert yfir völlinn, hröð samvinna í þröngum svæðum, fótbolti í einni snertingu og svo þessar sendingar í gegnum vörnina inn í svæði sem aðeins þeir hæfileikaríkustu þora að reyna. „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu. Og þar skilur hann á milli. Að geta sótt beint strax: það er leyndarmál nýja Napoli. Vissulega gefur liðið eitthvað eftir aftast (þrjú mörk, nánast öll gegn uppstilltri vörn), en hugmyndin virðist vera sigurvegari. Fyrir Napoli og fyrir De Bruyne sjálfan. Aftar, afgerandi og banvænn á ný,“ skrifaði D'Angelo.
Ítalski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Sjá meira