Sport

„Dómarinn var að gera sitt besta og þetta var hans besta“

Andri Már Eggertsson skrifar
Guðni Eiríksson, þjálfari FH, á hliðarlínunni í leik kvöldsins
Guðni Eiríksson, þjálfari FH, á hliðarlínunni í leik kvöldsins Vísir/Guðmundur

FH mátti þola 0-4 tap gegn Þrótti á heimavelli í ansi þýðingarmiklum leik fyrir FH-inga þar sem liðið hefði geta tryggt sér úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í næstu umferð. Breiðablik á leik til góða og nægir stig til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.

Guðni Eiríksson, þjálfari FH, var allt annað en sáttur út í dómgæslu leiksins ásamt því að óska Blikum til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn.

„Blikar eru Íslandsmeistarar 2026,“ sagði Guðni í viðtali eftir leik og hélt áfram.

„Mörk breyta leikjum. Það var vont að vera 0-2 undir í hálfleik og það var erfitt að sækja í þeirri stöðu og við vorum búin að fækka varnarmönnum og fengum því á okkur tvö mörk undir lokin. Við gerðum allt til þess að koma okkur inn í leikinn en það gekk ekki.“

Í stöðunni 0-0 fengu Þróttarar ansi umdeilda vítaspyrnu þar sem brotið átti sér stað fyrir utan teig og Guðni furðaði sig á því af hverju hæfari dómari hafi ekki verið settur á þennan leik.

„Eins og allir sáu þá var þetta aldrei vítaspyrna. Þú kemst ekki hærra á Íslandi kvenna megin en að spila um titil í þessari deild. Það var ekki eins og dagskráin hafi verið troðfull af leikjum í dag og að KSÍ geri ekki betur og setji top 5 dómara á þennan leik.“

„Þessi dómari var að gera sitt besta og þetta var hans besta og það er því miður ekki ásættanlegt á þessu stigi og þegar svona mikið er í húfi. Ég segi það hreint og beint út og þetta setti ákveðið strik í reikninginn.“

„Ég segi það aftur. Þegar við erum á þessu stigi mótsins undir lok tímabilsins að það skuli ekki vera settur betri dómari á leikinn. Ég næ því ekki það var enginn annar leikur á þessum tíma og ekki segja mér það að dagskráin hafi verið full hjá dómarastéttinni,“ sagði Guðni að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×