Sport

Tár féllu í Bakgarðshlaupinu

Aron Guðmundsson skrifar
Þorleifur með fjölskyldu sinni og stuðningsliði fyrir upphaf hlaupsins í dag
Þorleifur með fjölskyldu sinni og stuðningsliði fyrir upphaf hlaupsins í dag Vísir/Viktor Freyr

Gleðitár féllu er ein af dætrum Ís­lands­met­hafans í Bak­garðs­hlaupum, Þor­leifs Þor­leifs­sonar, mætti óvænt til landsins til þess að styðja við bakið á pabba sínum í lands­liðs­keppni sem nú stendur yfir í Elliðaár­dalnum.

Íslenska landsliðið, sem fimmtán hlauparar skipa, stendur í ströngu þessa stundina í landsliðskeppninni. Gul veðurviðvörun er í gildi og myrkrið skollið á.

Andinn í hópnum er hins vegar góður og er sjöundi hringur hafinn nú þegar þetta er skrifað.

Dætur Þorleifs, sem er einn af reynsluboltunum í íslenska landsliðinu og ríkjandi Íslandsmethafi, mættu í viðtal í beinni útsendingu frá hlaupinu á Vísi.

Klippa: Tár féllu í Bakgarðshlaupinu

Ein þeirra mætti óvænt til landsins til þess að styðja við bakið á pabba sínum. Fagnaðarfundir og gleðitár féllu.

Dætur Þorleifs hafa fulla trú á því að pabbi þeirra geti bætt ríkjandi Íslandsmet sem telur heila 62 hringi. Viðtalið við dætur Þorleifs má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni.

Beina útsendingu frá Bakgarðshlaupinu má finna í eftirfarandi frétt:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×