Leik lokið: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Árni Jóhannsson skrifar 19. október 2026 21:12 Fjólubláir Skagamenn fóru í burtu með öll þrjú stigin úr Úlfarsárdalnum í kvöld. Vísir/Anton Skagamenn sóttu þrjú stig í Úlfarsárdalinn í kvöld eftir að hafa skorað tvö mörk í uppbótartíma og tryggt sér 4-2 sigur í Bestu deild karla í fótbolta. Framarar komust yfir en voru manni færri frá tólftu mínútu. Fram náði að jafna metin manni færri en varamenn Skagamanna áttu lokaorðið og komu sínu liði upp fyrir Blika og upp í fjórða sætið. Framarar hafa þar með leikið sex leiki í röð án sigurs og ekki unnið síðan í ágúst. Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld. Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild karla Fram ÍA