Formúla 1

Hlustaði ekki á liðið og baðst af­sökunar

Andri Broddason skrifar
Það virðist lítið ætla að ganga upp fyrir Hamilton á seinni helming tímabilsins.
Það virðist lítið ætla að ganga upp fyrir Hamilton á seinni helming tímabilsins. Clive Mason/Getty Images

Lewis Hamilton bað Ferrari afsökunar á því að hafa ekki hlustað á liðið í keppninni og fór gegn þeirra ráði. Liðið vildi fá Hamilton til að fá ný dekk undir lok keppninnar en hann fór gegn þeirra ráði og missti dýrmæt stig við það.

Undir lok keppninnar leit út fyrir að Ferrari myndi enda keppnina í öðru og þriðja sæti en því miður fyrir ítalska liðið varð ekkert úr því. Charles Leclerc, ökumaður Ferrari, náði að enda í öðru sætinu en Lewis Hamilton hríðféll í lokin.

Ekkert grip var eftir af dekkjum Hamilton en hann fór ekki og fékk ný dekk þegar liðið vildi það. Það endaði með því að Hamilton var mun hægari en ökumennirnir fyrir aftan hann í lokin og náðu nokkrir ökumenn að taka fram úr Hamilton sem var sár eftir keppnina.

Hamilton bað Ferrari-liðið afsökunar á því að hafa farið gegn ráði liðsins og tók mikla ábyrgð. Ferrari hefur verið gagnrýnt mikið á tímabilinu fyrir að taka lélegar ákvarðanir varðandi keppnisáætlanir. Nú virtist liðið hafa ætlað að gera góða áætlun en enn eina ferðina gekk ekkert upp fyrir liðið.

Max Verstappen sýndi mikla yfirburði í kappakstrinum og leiddi alla hringina. Hann náði naumlega að viðhalda fyrsta sætinu í byrjun keppninnar en Charles Leclerc sótti hart að honum. Verstappen náði þó að verjast því og byggja gott forskot sem Leclerc náði ekki að vinna upp.

Kimi Antonelli náði að enda í þriðja sæti og fékk þar með mikilvæg stig í heimsmeistaramótinu. Ungi Ítalinn er nú með 102 stiga forskot á George Russell sem er í öðru sætinu og virðist hann vera kominn með aðra höndina á heimsmeistaratitilinn. Sex keppnir eru eftir samkvæmt keppnisdagatalinu en ekki er víst að það verði keppt í Katar eða Abu Dhabi vegna stríðsástands í löndunum í kring.

Ef þeim keppnum verður aflýst þá er Antonelli búinn að tryggja sér heimsmeistaratitilinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×