Formúla 1

Á­föllin halda á­fram að dynja á Russell

Andri Broddason skrifar
Það virðist ekkert ætla að ganga upp hjá George Russell.
Það virðist ekkert ætla að ganga upp hjá George Russell. Jayce Illman/Getty Images

Áföllin halda áfram að dynja á George Russell og virðist hann vera að missa af liðsfélaga sínum, Kimi Antonelli, í heimsmeistaramótinu í Formúlu 1. Hann mun þurfa að byrja kappaksturinn í Singapúr aftastur eftir að hafa þurft að setja nýja vél í bílinn sinn.

Russell, sem keyrir fyrir Mercedes, byrjaði Bahrein-kappaksturinn áttundi en var búinn að vinna sér inn góða stöðu og var líklegt að hann myndi enda keppnina á verðlaunapalli. Það endaði þó ekki á því að gerast þar sem vélin í bílnum hans gaf sig og þurfti hann að hætta keppni.

Ekki var hægt að gera við það sem var að vélinni og þarf hann því að setja nýja vél í bílinn. Með því að gera það fer hann yfir magn hluta í vél sem ökumenn mega nota og mun hann því fá refsingu fyrir að taka nýja hluti.

Kappakstursbrautin í Singapúr er þröng og erfitt er að taka fram úr og er því virkilega slæmt að byrja kappaksturinn aftarlega. Það er því ólíklegt að hann muni ná að minnka forskot Kimi Antonelli sem er efstur í heimsmeistaramótinu. 84 stig eru á milli Russell og Antonelli og má því Russell ekki við fleiri bakslögum ef hann ætlar sér að ná unga Ítalanum.

Russell mun þó fá tækifæri til þess að bjarga einhverjum stigum þar sem það verður sprettkeppni í Singapúr. Hann mun þá geta fengið átta stig fyrir að vinna sprettkeppnina en hann verður að vona að Antonelli nái ekki að vinna stig heldur.

Ef Antonelli verður heimsmeistari í ár þá mun hann verða yngsti heimsmeistari sögunnar í Formúlu 1. Hann er aðeins 20 ára en Þjóðverjinn Sebastian Vettel er yngsti ökumaður sem hefur orðið heimsmeistari en hann náði því þegar hann var 23 ára gamall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×