Vill að mótherji hans fari í bann eftir árekstur Andri Broddason skrifar 26. september 2026 22:15 Lando Norris var ekki sáttur með mótherja sinn í Aserbaísjan. Andrea Diodato/Getty Images Lando Norris sagði að Franco Colapinto ætti að fara í bann eftir að hann datt úr leik í kappakstrinum í Aserbaísjan í Formúlu 1. Colapinto bremsaði of seint í fyrstu beygju og klessti á Pierre Gasly og Lando Norris.
Á 31. hring í kappakstrinum endaði Alex Albon á að klessa í vegginn og þurfti öryggisbíllinn að fara út. Það átti þó eftir að vera mikil ringulreið þegar kappaksturinn fór aftur af stað og gerði Franco Colapinto stór mistök. Alpine var með tvo bíla í stigasæti og var Colapinto í síðasta stigasætinu þegar keppnin hófst aftur. Hann bremsaði þó of seint í fyrstu beygju og keyrði utan í liðsfélaga sinn, Pierre Gasly, og ríkjandi heimsmeistara Lando Norris. Sá síðarnefndi var ekki ánægður með hvað Colapinto gerði og í viðtali við BBC Radio 5 sagði Norris að Colapinto ætti að fara í bann eftir það sem hann gerði. Colapinto viðurkenndi eftir keppnina að hann hefði gert mistök og baðst fyrirgefningar á því sem hann gerði. George Russell náði að vinna kappaksturinn í Aserbaísjan en hann var rétt á undan Max Verstappen sem endaði í öðru sætinu. Hefði verið einn hringur til viðbótar í keppninni er líklegt að Max Verstappen hefði sótt langþráðan sigur á tímabilinu. Þeir tveir voru ekki sammála Norris um að Colapinto ætti að fara í bann og sögðu að slík mistök gætu gerst. Þau geti verið leiðinleg og haft miklar afleiðingar en ef ökuþórar eru settir í bann fyrir slík mistök þá yrði íþróttin ekki skemmtileg. Colapinto endaði á að fá 10 sekúndna refsingu en hann var hættur keppni sem þýðir að hann mun byrja fimm sætum aftar í næstu keppni sem verður haldin í Malasíu.
Akstursíþróttir Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Fleiri fréttir Vill sjá breytingar svo það komi ekki annað klúður Hjólar yfir 350 kílómetra í næstu keppni Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Sjáðu ruglið í Formúlunni í morgun Verstappen vann skrautlega keppni Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Kunnugleg framlína í Malasíu Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Heimsmeistarinn biðst afsökunar: „Tilfinningarnar báru mig ofurliði“ Segir Horner vera að trufla Ferrari Vill að mótherji hans fari í bann eftir árekstur Antonelli klessti á og Russell næstum sekúndu hraðari en aðrir Stytta keppnir í Formúlu 1 Hamilton segist ekki hafa beðið um að reka fólk úr liðinu Verstappen tók fram úr hundrað ökuþórum Antonelli stefnir hraðbyri í átt að heimsmeistaratitli Ætlar ekki að hlusta á sófasérfræðinga sem vita ekki neitt Sögulegur ráspóll heimsmeistarans Nýja brautin í Madrid toppi Mónakó Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Enn ein vonbrigðin fyrir Hadjar Enn og aftur stöðvaður með skotvopn á flugvelli Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Leclerc segir ekkert þungt milli hans og Hamilton Antonelli fór aftastur af stað en vann ótrúlegan sigur Gasly óvænt á ráspól í fyrsta sinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Sjá meira