Heimsmeistarinn biðst afsökunar: „Tilfinningarnar báru mig ofurliði“ Aron Guðmundsson skrifar 29. september 2026 07:31 Lando Norris, Formúlu 1 heimsmeistari og ökuþór McLaren Vísir/Getty Ríkjandi Formúlu 1 heimsmeistarinn Lando Norris, ökuþór McLaren, hefur beðið kollega sinn í mótaröðinni afsökunar eftir ummæli sem hann lét falla eftir árekstur í keppni mótaraðarinnar í Bakú um nýliðna helgi.
Á 36. hring keppninnar á götum Bakú átti sér stað þriggja bíla árekstur þar sem að Franco Colapinto, ökuþór Alpine, tók bæði út liðsfélaga sinn og Lando Norris. Í hita leiksins fór áreksturinn og aksturslag Colapinto mjög illa í Lando Norris sem lét hafa það eftir sér að „sumir ökuþórar ættu bara ekki að keppa í Formúlu 1“ og enn fremur kallaði hann eftir keppnisbanni í svona tilvikum. Klippa: Þriggja bíla árekstur Eftir keppnina á laugardaginn síðastliðinn bað Colapinto bæði Norris sem og liðsfélaga sinn Pierre Gasly afsökunar en honum hefur verið gefin fimm sæta refsing í keppni næstu keppnishelgar í Malasíu. Norris hefur nú sjálfur séð að sér. Í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram í dag bað hann Colapinto afsökunar á ummælum sínum. „Ég sendi honum skilaboð eftir keppnina og baðst afsökunar á ummælum mínum. Ég hefði ekki átt að segja þetta. Ég veit betur en tilfinningarnar báru mig ofurliði þarna. Það er ekki afsökun af minni hálfu, ég hafði bara rangt fyrir mér.“ Hann og Colapinto séu enn mestu mátar og hlakki til að keppa á nýjan leik um komandi helgi.
Akstursíþróttir Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir Vill sjá breytingar svo það komi ekki annað klúður Hjólar yfir 350 kílómetra í næstu keppni Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Sjáðu ruglið í Formúlunni í morgun Verstappen vann skrautlega keppni Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Kunnugleg framlína í Malasíu Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Heimsmeistarinn biðst afsökunar: „Tilfinningarnar báru mig ofurliði“ Segir Horner vera að trufla Ferrari Vill að mótherji hans fari í bann eftir árekstur Antonelli klessti á og Russell næstum sekúndu hraðari en aðrir Stytta keppnir í Formúlu 1 Hamilton segist ekki hafa beðið um að reka fólk úr liðinu Verstappen tók fram úr hundrað ökuþórum Antonelli stefnir hraðbyri í átt að heimsmeistaratitli Ætlar ekki að hlusta á sófasérfræðinga sem vita ekki neitt Sögulegur ráspóll heimsmeistarans Nýja brautin í Madrid toppi Mónakó Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Enn ein vonbrigðin fyrir Hadjar Enn og aftur stöðvaður með skotvopn á flugvelli Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Leclerc segir ekkert þungt milli hans og Hamilton Antonelli fór aftastur af stað en vann ótrúlegan sigur Gasly óvænt á ráspól í fyrsta sinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Sjá meira