Fór fram úr Verstappen og svo fram úr sér Valur Páll Eiríksson skrifar 10. október 2026 10:18 Gera þurfti langa pásu og færa bíl Russells af brautinni. Getty Max Verstappen var fyrstur í mark í skrautlegri sprettkeppni í Formúlu 1 í Singapúr í morgun. Ófarir George Russell halda áfram.
Miklar rigningar blöstu við mönnum á brautinni í Singapúr í morgun og fresta þurfti sprettkeppninni um rúman hálftíma sökum þess. Afskaplega blaut braut hafði áhrif á keppnina þegar hún loks komst af stað og varð spretturinn nær því að vera skokk til að byrja með. George Russell spratt aftur á móti úr spori og fór fram úr Max Verstappen í fyrstu beygju og tók forystuna. Hann fór ekki aðeins fram úr Verstappen heldur einnig fram úr sér þar sem hann missti stjórn á bílnum í bleytunni og þeyttist utan í vegg. Eftir erfiða viku gengur allt áfram á afturfótunum hjá Bretanum sem missti af sínum eina möguleika á stigum um helgina. Russell mætir nefnilega til leiks í kappakstur morgundagsins með nýja vél og því ræsir hann aftastur þar. Vegna áreksturs Russells frestaðist keppnin enn frekar og ýmsir ökuþórar lentu í vandræðum í bleytunni. Heilir sex voru fallnir úr leik þegar keppni var ræst að nýju. Verstappen leiddi til loka og kom fyrstur í mark. Lewis Hamilton á Ferrari var annar og liðsfélagi hans Charles Leclerc þriðji. Þegar menn voru að rúlla lokahringinn tókst Lando Norris hins vegar að klessa á liðsfélagann Oscar Piastri með þeim afleiðingum að sá síðarnefndi féll úr keppni. Líkt og áður segir er kappaksturinn í Singapúr á morgun og tímataka fyrir hann fer fram síðar í dag. Bein útsending frá tímatökunni hefst klukkan 12:55 á Sýn Sport Viaplay.
Akstursíþróttir Mest lesið Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Körfubolti Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Magnað mark dugði fyrir sigri Enski boltinn „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Íslandsmeistarinn einbeittur Sport „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Körfubolti Tap í heimalandinu reyndist síðasti naglinn í kistuna Fótbolti Fleiri fréttir Fór fram úr Verstappen og svo fram úr sér Býður við skrifunum: „Ég er Satan“ Hamilton vonast til þess að keppa í Afríku Varað við miklum hita yfir kappakstrinum í Singapúr Kláraði að hjóla 420 km á fjórum dögum fyrir kappakstur Áföllin halda áfram að dynja á Russell Vill sjá breytingar svo það komi ekki annað klúður Hjólar yfir 350 kílómetra í næstu keppni Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Sjáðu ruglið í Formúlunni í morgun Verstappen vann skrautlega keppni Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Kunnugleg framlína í Malasíu Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Heimsmeistarinn biðst afsökunar: „Tilfinningarnar báru mig ofurliði“ Segir Horner vera að trufla Ferrari Vill að mótherji hans fari í bann eftir árekstur Antonelli klessti á og Russell næstum sekúndu hraðari en aðrir Stytta keppnir í Formúlu 1 Hamilton segist ekki hafa beðið um að reka fólk úr liðinu Verstappen tók fram úr hundrað ökuþórum Antonelli stefnir hraðbyri í átt að heimsmeistaratitli Ætlar ekki að hlusta á sófasérfræðinga sem vita ekki neitt Sögulegur ráspóll heimsmeistarans Nýja brautin í Madrid toppi Mónakó Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Enn ein vonbrigðin fyrir Hadjar Sjá meira