„Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Agnar Már Másson skrifar 8. október 2026 19:08 Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins (SGS). Vísir/Arnar Formaður Starfsgreinasambandsins segir að „fjölmiðlasirkus“ Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, hafi ekki skilað félagsmönnum hennar betri kjörum heldur en Breiðfylkingin svokallaða samdi um fyrr í vikunni. Breiðfylkingin hafi tryggt styttri samningstíma á meðan stytting í samningum VR sé háð verðbólgu. „
Ég vil tryggja að launafólk haldi ekki að þetta leikrit hafi skilað einhverjum árangri umfram það sem Breiðfylkingin hafði þegar náð fram,“ skrifar Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, í Facebook-færslu sem hann birti í kvöld í tilefni þess að Samtök atvinnulífsins og VR náðu samkomulagi í kjaradeilu sinni. Síðar um daginn boðaði ríkisstjórnin og aðilar vinnumarkaðarins aðgerðir sem ættu að styðja við samningana. „Miðað við þá niðurstöðu sem kynnt hefur verið er það alls ekki svo. Eftir svona fjölmiðlasirkus er mikilvægt að sannleikurinn liggi fyrir,“ bætir hann við. Starfsgreinasamband Íslands (SGS), Efling og Samiðn (saman kallað Breiðfylkingin) skrifuðu undir samkomulag við Samtök atvinnulífsins (SA) þriðjudagskvöldið 6. október. Vilhjálmur tekur fram að samkomulagið hafi tryggt að allar umsamdar launahækkanir skiluðu sér að fullu og stytt samningstímann um einn mánuð, þannig að samningarnir rynnu út 31. desember 2027. „Formaður VR sagði að það sem Breiðfylkingin skrifaði undir væri ekki nóg fyrir hennar félagsfólk. VR og fagfélögin höfðu enda lagt fram margar kröfur á hendur SA,“ bætir Vilhjálmur við. Hann rifjar þá upp það sem hafi staðið til boða. SA hafi sent SGS tilboð um að samningarnir styttust um tvo mánuði ef tólf mánaða verðbólga yrði yfir 4,3 prósent í október 2027. „Eftir minni bestu vitund stóð VR og fagfélögunum þessi leið einnig til boða í byrjun vikunnar,“ skrifar Vilhjálmur. Þessu tilboði VR hafi Breiðfylkingin hafnað þar sem henni hafi fundist metnaðarlaust að miða við svo háa verðbólgu eftir heilt ár. Þau hafi verið tilbúin að miða við að tólf mánaða verðbólga yrði að hámarki 3,9 prósent, en því höfnuðu SA. Því hafi verið samið um að stytta samningana um einn mánuð án þessa skilyrðis. Mikilvægt sé að félagsfólk SGS, Eflingar og Samiðnar átti sig á þessum mun: „Okkar stytting er tryggð, óháð því hver verðbólgan verður í október á næsta ári.“ Vilhjálmur segir að nú hafi formaður VR skrifað undir samkomulag þar sem tveggja mánaða stytting sé háð verðbólguskilyrðum, með tveimur viðmiðum í október á næsta ári: 4,3 prósenta tólf mánaða verðbólgu og 3,8 prósenta sex mánaða verðbólgu. „Miðað við verðbólguspá ASÍ, eins og ég les hana, mun þetta ákvæði ekki einu sinni skila félagsfólki hennar neinni styttingu samninganna. Það segir meira en mörg orð,“ segir Vilhjálmur. „[M]iðað við það sem fram hefur komið hefur ekkert annað fengist umfram það sem við höfðum þegar samið um. Munurinn liggur í mögulegri tveggja mánaða styttingu sem er háð verðbólguskilyrðum, á meðan við tryggðum eins mánaðar styttingu án slíkra skilyrða,“ segir Vilhjálmur. Hann kveðst seint munu skilja allar yfirlýsingarnar um verkföll og að ekki yrði gefið tommu eftir. „Jafnvel voru mögulegar uppsagnir samninga opinberu félaganna dregnar inn í umræðuna. Þessu hefur fylgt fjölmiðlasirkus frá klukkan átta í morgun — og allt í beinni útsendingu!“ Niðurstaðan sé svo nokkurn veginn tilboð sem hafi legið fyrir síðasta mánudag og staðið þeim til boða, og sem Breiðfylkingin hafi hafnað. Að hans mati hefði verið hægt að ganga frá þessari niðurstöðu strax á þriðjudag, enda hafi aðkoma ríkisstjórnarinnar vegna vaxtabóta þá þegar verið komin fram. „Félagsfólk á rétt á skýru svari um hvað breyttist frá mánudegi til fimmtudags og hvað fékkst fram með öllum þessum látum.“ Hann óskar þó félagsfólki VR og fagfélaganna til hamingju með að samningar þeirra haldi og umsamdar launahækkanir skili sér. „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið,“ skrifar hann. Aðalmálið sé verkefni sem SGS, Efling og Samiðn hafi lagt höfuðáherslu á, sem sé að ná niður verðbólgu og vöxtum. „Það er það sem mun létta undir með launafólki og heimilunum í landinu. Til þess verða stjórnvöld, sveitarfélög og atvinnulífið áfram að axla sína ábyrgð með okkur og fylgja því eftir sem lagt hefur verið fram,“ skrifar hann og bætir við að lokum: „Og já, ég er sannfærður um að okkur muni takast þetta ef allir standa við sitt“
Kjaramál Kjaraviðræður 2023-25 Vinnumarkaður Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Sjá meira