Erlent

Banda­rískir her­menn í út­göngu­banni eftir morð

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Íbúar vilja ekki hafa hermennina á eynni.
Íbúar vilja ekki hafa hermennina á eynni. EPA

Bandarískir hermenn sem eru á japönsku eyjunni Okinawa hafa verið settir í útgöngubann eftir að einn þeirra var sakaður um að hafa myrt og rænt konu á eyjunni. 

Devin Jacob Ballard, tuttugu ára liðþjálfi í bandaríska hernum, er grunaður um að hafa orðið Önna Yagi, 39 ára japanskri konu, að bana á hóteli í borginni Naha. Hann er einnig grunaður um að hafa tekið veski og bakpoka Yagi eftir morðið. Ballard neitar sök samkvæmt umfjöllun Reuters.

Hún er talin hafa látist af köfnun. Starfsfólk hótelsins fann Yagi meðvitundarlausa í herbergi sínu snemma á laugardagsmorgun eftir að hún hafði ekki skráð sig út af hótelinu. Um tvö hundruð lögreglumenn komu að leit að manninum þar sem mynd náðist af honum úr öryggismyndavél hótelsins.

Vegna þessa hafa allir hermennirnir verið settir í mánaðarlangt útgöngubann auk þess sem þeir mega ekki neyta áfengis. Þeim verður skylt að gangast undir sérstaka agaþjálfun.

Sanae Takaichi, forsætisráðherra Japans, sagði morðið „hrottalegt og svívirðilegt“. Hún sjálf hafi haft samband við fulltrúa Bandaríkjanna og krafist sérstakra ráðstafana til að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig.

Í Japan er stærsta herlið Bandaríkjanna utan heimalands þeirra og eru um átján þúsund hermenn á Okinawa-eyjunni. Bandaríkin voru með yfirráð yfir eyjunni frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar til ársins 1972. 

Fyrir var töluverð óánægja með viðveru bandaríska hersins á eyjunni sem er nærri Taívan og Kína og er þetta nýjasta málið í röð atvika. Auk mála sem varða hávaða og flugslys hefur framferði hermannanna einnig verið gagnrýnt. Árið 1995 nauðguðu þrír hermenn tólf ára gamalli stúlku og leituðu íbúar út á götu til að mótmæla veru þeirra á eynni.

Stjórnvöld Japans og Bandaríkjanna telja viðveru hermannanna á eyjunni vera lykilatriði til að fæla Kína frá hugsanlegri árás. Eyjan er í um hundrað kílómetra fjarlægð frá Taívan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×