Erlent

Vill fimm­tán ára reynslutíma­bil fyrir ný aðildar­ríki

Kjartan Kjartansson skrifar
Marta Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins.
Marta Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins. Vísir/EPA

Ný aðildarríki að Evrópusambandinu gætu verið svipt atkvæðarétti eða fjárveitingum ef þau brjóta gegn grunngildum sambandsins á fimmtán ára reynslutímabili ef tillögur framkvæmdastjórnar þess verða að veruleika. Sambandið vill koma í veg fyrir að nýr Viktor Orbán komi fram sem verði þrándur í götu þess.

Marta Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, kynnti tillögurnar í gær. Í viðtali við fjölmiðla sagði hún að sambandið yrði að hafa aðrar og einfaldari leiðir en sjöundu grein sáttmálans um Evrópusambandið til þess að bregðast við ef ný aðildarríki ganga gegn réttarríkinu, lýðræðinu eða grunngildum sambandsins.

„Ekki meiri Viktor Orbán,“ sagði Kos og vísaði til fyrrverandi forsætisráðherra Ungverjalands sem var öðrum aðildarríkjum erfiður ljár í þúfu um árabil.

Sjöunda grein sáttmálans gefur aðildarríkjum heimild til þess að svipta annað ríki atkvæðarétti fyrir alvarleg og langvarandi brot á lýðræðislegum gildum. Ákvæðinu hefur hins vegar aldrei verið beitt. Evrópusambandið hafði sérstaklega áhyggjur af hnignun lýðræðis og réttarríkisins í Póllandi og Ungverjalandi en ríkin tvö gátu þá notað neitunarvald sitt til þess að vernda hvort annað.

Tillögur framkvæmdastjórnarinnar fela í sér að auðveldara yrði að svipta ríki atkvæðarétti og beita þau öðrum þvingunaraðgerðum. Þetta væri hægt á fimmtán ára reynslutímabili nýrra aðildarríkja.

„Þetta er mikil nýbreytni og mikilvæg skilaboð til borgara í löndum sem hafa efasemdir um stækkun um að við séum með öflugt regluverk jafnvel ef eitthvað fer úrskeiðis eftir stækkun,“ hefur breska blaðið The Guardian eftir Kos.

Nokkur ríki í austanverðri Evrópu sækjast nú eftir aðild að Evrópusambandinu. Svartfjallaland, Albanía, Moldóva og Úkraína gætu öll gengið í sambandið á næstu árum. Öll aðildarríki sambandsins þurfa hins vegar að samþykkja að ný ríki séu tekin inn. Frakkar og Tékkar eru sagðir sérstaklega neikvæðir í garð nýrra aðildarríkja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×