Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 27. september 2026 00:03 Íbúar flögguðu írska fánanum í hálfa stöng við fréttirnar. Getty Óraníureglunni verður heimilt að ganga um Garvaghy Road í Portadown á Norður-Írlandi í fyrramálið, í fyrsta sinn í 28 ár. Áfrýjunardómstóll í Belfast felldi seint á laugardagskvöld úr gildi tímabundið bann sem hafði verið lagt við göngunni aðeins nokkrum klukkustundum áður.
Ákvörðunin hefur vakið miklar áhyggjur á Norður-Írlandi enda var deilan um árlega Drumcree-gönguna eitt eldfimasta deilumál síðustu ára átakanna þar. Hverfið umhverfis Garvaghy Road er að mestu byggt írskum þjóðernissinnum og kaþólikkum en Óraníureglan eru mótmælendasamtök nátengd vopnuðum sveitum sambandssinna á síðustu öld. Gangan á að hefjast við Drumcree-kirkju klukkan átta í fyrramálið, sunnudagsmorgun, samkvæmt umfjöllun Guardian. Aðeins 35 manns mega taka þátt, engar lúðrasveitir verða með í för og stuðningsmönnum er ekki heimilt að fylgja göngunni. Erfitt að ofmeta vantraustið Í kjölfar ákvörðunar svokallaðrar skrúðgöngunefndar Norður-Írlands um að heimila gönguna leituðu samtök íbúa við Garvaghy Road til dómstóla. Eftir fimm klukkustunda málflutning ákvað dómari við Hæstarétt Norður-Írlands að stöðva gönguna tímabundið. Dómarinn, Justice Smyth, reyndi áður að fá Óraníuregluna og íbúasamtökin til að komast að samkomulagi um að fresta göngunni. Hún sagði vantraustið milli hópanna svo mikið að erfitt væri að ofmeta það og hvatti aðila til að „stíga frá brúninni“ friðarins vegna á Norður-Írlandi. Óraníureglan féllst ekki á að fresta göngunni og málinu var áfrýjað. Skömmu fyrir miðnætti var tímabundna bannið fellt úr gildi og stendur ákvörðun skrúðgöngunefndarinnar því óhögguð. Barnungir bræður drepnir í óeirðunum Málið á rætur að rekja langt aftur í tímann en í fersku minni eru deilurnar um Garvaghy Road-gönguna á seinni hluta tíunda áratugarins, þegar friðarumleitanir á Norður-Írlandi stóðu sem hæst. Óraníureglan hafði um langt skeið gengið árlega frá Drumcree-kirkju og niður Garvaghy Road. Gangan á sér langa sögu allt frá nítjándu öld en íbúasamsetning hverfisins hefur síðan breyst og hefur hverfið í kringum Garvaghy Road orðið kaþólskt og sameiningarsinnað að mestu. Árin 1995 til 1998 einkenndust af gríðarlegum öryggisviðbúnaði í kringum göngurnar, götubardögum, vegatálmum og óeirðum. Á seinni hluta tíunda áratugarins árum voru þúsundir lögreglumanna og hermanna kallaðir út til að halda fylkingunum aðskildum. Aðeins nokkrum mánuðum eftir undirritun samkomulagsins sem kennt er við föstudaginn langa og lögðu grunn að friði á Norður-Írlandi komst Garvaghy Road aftur í hámæli. Óraníureglunni var þá meinað að ganga um Garvaghy Road og mótmæltu sambandssinnar því víða um landið. Á meðan mótmælunum stóð var bensínsprengju kastað inn í heimili hinnar kaþólsku Quinn-fjölskyldu í Ballymoney. Þrír ungir bræður, hinn ellefu ára Richard, tíu ára Mark og níu ára Jason, létust í eldinum.
Norður-Írland Bretland Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Sjá meira