Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Samúel Karl Ólason skrifar 23. september 2026 09:15 Frá fundi Trumps og Xi í Suður-Kóreu í fyrra. AP/Mark Schiefelbein Taívan og mannréttindi marka rauðar línur fyrir ráðamenn í Kína, hvað varðar viðræður Donalds Trump og Xi Jinping í Washington DC í dag. Sendiherra Kína í Bandaríkjunum segir að Bandaríkjamenn eigi að hætta að reyna að skapa átyllur eins og þjóðaröryggismál, efnahagslegt ójafnvægi og þrælkunarvinnu til að reyna að halda aftur af framrás Kína.
Þetta er meðal þess sem Xie Feng, umræddur sendiherra, skrifaði í grein sem birt var í málgagni Kommúnistaflokksins í Kína í morgun, samkvæmt frétt Reuters. Í þeirri grein skrifar Xie að Bandaríkjamenn megi ekki láta sig dreyma um að hamla fullveldi Kína, öryggi og hagsmunum og nefnir hann fjórar rauðar línur fyrir viðræður dagsins. Þær eru „spurningin um Taívan“, „lýðræði og mannréttindi“, „framrásarleiðir Kína“ og „réttur Kína til framrásar“. Sendiherrann segir að ekki megi ögra Kínverjum á þessum sviðum. Sendiherrann segir að ráðamenn í Kína séu staðfastir í því að sækjast eftir friðsamlegri framrás og vonar hann að Bandaríkjamenn muni fylgja þessari línu. Sérfræðingar í málefnum Kína telja miklar líkur á því að Xi hafi sett sér það markmið fyrir fundinn í dag að fá Trump til að hætta við sölu hergagna til Taívan, sem Kínverjar gera tilkall til. Xi hefur hótað því að taka stjórn á Taívan með hervaldi og varað Trump við því að haldi hann rangt á spöðunum varðandi eyríkið geti komið til átaka milli Kína og Bandaríkjanna. Ætlar að taka vel á móti Xi Þegar Xi ferðast til Bandaríkjanna í dag mun flugvél hans verða lent á Joint Base Andrews-herstöðinni nærri Wasington DC. Þar mun Trump taka á móti honum á flugbrautinni en slíkar móttökur eru mjög sjaldgæfar í Bandaríkjunum. Yfirleitt taka forsetar ekki á móti gestum sínum fyrr en þeir koma til Hvíta hússins. Trump mun hins vegar hitta þau Xi og Peng Liyuan, eiginkonu hans, á flugvellinum og hefst þá þriggja daga heimsókn kínverska forsetans. Í grein AP-fréttaveitunnar segir að Trump hafi í aðdraganda heimsóknarinnar ausið lofi yfir Xi. Hann hafi hrósað honum sem merkum leiðtoga og lýst honum sem góðum vini. Trump hefur að undanförnu forðast það mjög að gagnrýna Xi á nokkurn hátt, sem er mikill viðsnúningur frá því í byrjun kjörtímabils hans þegar Trump var mjög gagnrýninn á ráðamenn í Kína og beitti ríkið umfangsmiklum tollum, sem sprakk í andlitið á Trump eftir viðskiptastríð ríkjanna. Mótmælandi klifraði upp ljósastaura í Washington DC í gær og hengdi upp borða þar sem hann var búinn að skrifa skilaboð til Xi.AP/Allison Robbert Gagnrýndi boð Trumps til Xi Öldungadeildarþingmaðurinn Roger Wicker, sem er Repúblikani og formaður varnarmálanefndar öldungadeildarinnar, gagnrýndi í gær Trump fyrir að bjóða Xi til Bandaríkjanna og ætla að taka svona vel á móti honum, á sama tíma og Bandaríkin og Kína stæðu í fjölmörgum deilum. Wicker nefndi að Trump gæti rætt við Xi um tilgang gífurlegrar hernaðaruppbyggingar Kínverja á undanförnum árum og um stuðning Kínverja við klerkastjórnina í Íran. Þingmaðurinn sagði einnig að Trump ætti að hafa í huga að Xi væri „grimmur og ókjörinn einræðisherra“ sem sæktist eftir yfirráðum yfir nágrönnum sínum. Að hernaðaruppbyggingu Kína væri sérstaklega beint gegn Bandaríkjunum. Wicker nefndi einnig hvernig búið væri að koma fram við Úígúra í Kína, sem hafa verið beittir umfangsmiklum mannréttindabrotum á undanförnum árum. Áhugasamir geta séð ummæli þingmannsins á þingi í gær í spilaranum hér að neðan.
Bandaríkin Kína Donald Trump Taívan Mannréttindi Hernaður Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Sjá meira