Upp­gjörið: Aftur­elding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik

Þorsteinn Hjálmsson skrifar
Ekkert fékk liðin aðskilin í dag en FH-ingar fara líklega svekktari heim.
Ekkert fékk liðin aðskilin í dag en FH-ingar fara líklega svekktari heim. Vísir/Anton Brink

Önnur umferð Olís-deildarinnar hófst í kvöld. Lauk leik Aftureldingar og FH með jafntefli, 33-33, þar sem FH var með forystuna nánast allan leikinn.

Fór leikurinn fram í Myntkaup höllinni í Mosfellsbæ, en í fyrstu umferð deildarinnar sló rafmagnið út í höllinni og í raun öllum Mosfellsbæ. Leika þurfti því fyrri og svo síðari hálfleikinn sitt hvorn daginn vegna rafmagnsleysis. Áhorfendur fengu þó rafmagnaðan leik í kvöld.

Leikurinn fór heldur rólega af stað, en FH-ingar voru fyrri til til þess að eiga góðan kafla og mynduðu sér ágætis forystu. Staðan 4-7 fyrir FH eftir u.þ.b. tíu mínútna leik.

Mosfellingar reyndu að halda í við hvítklædda gestina en á 17. mínútu ákvað Hrannar Guðmundsson, þjálfari Aftureldingar, að taka leikhlé fjórum mörkum undir, 7-11. Hafði það góð áhrif á leikmenn Aftureldingar, en á næstu þremur mínútum minnkuðu þeir muninn niður í eitt mark.

Ómar Darri á flugi. Hann var markahæstur FH-inga.Vísir/Anton Brink

Aron Pálmarsson, þjálfari FH, tók þá leikhlé og í kjölfarið endurheimtu FH-ingar sína fjögurra marka forystu. Heimamenn náðu að laga stöðuna um tvö mörk fyrir hálfleik og staðan því 14-16 í hálfleik.

Hófst síðari hálfleikurinn með því að hver maðurinn á fætur öðrum var vísað út af í tveggja mínútna kælingu, en fimm brottvísanir komu á fyrstu sjö mínútum síðari hálfleiksins. FH-ingar héldu þó vel í forystu sína og var staðan 22-26 þegar stundarfjórðungur var eftir.

Það var þó um það leyti sem heimamenn fóru að saxa verulega á forystu gestanna og var staðan orðin jöfn þegar fimm mínútur voru eftir, 31-31.

Hart tekist á.Vísir/Anton Brink

Mikill hasar var síðustu mínúturnar og fékk meðal annars Harri Halldórsson, leikstjórnandi Aftureldingar, rautt spjald fyrir að skella Ómari Darra Sigurgeirssyni í gólfið. Báðir þjálfarar tóku leikhlé á þessum kafla til þess að knýja fram sigur.

Lokasókn leiksins féll í skaut heimamanna, eftir að Sigurjón Bragi Atlason, markvörður Aftureldingar, hafði varið dauðafæri frá Ómari Darra Sigurgeirssyni. Endaði sú sókn með ótímabæru skoti og lokatölur því 33-33.

Sigurjón Bragi átti gríðarmikilvæga vörslu undir lokin.Vísir/Anton Brink

Atvik leiksins

Varslan hjá Sigurjóni Braga undir lokin tryggði stig fyrir heimamenn og hefði jafnvel getað verið lykilaugnablik ef Afturelding hefði skorað úr lokasókn sinni. Frábær varsla úr dauðafæri.

Stjörnur og skúrkar

Hákon Daði Styrmisson var frábær í horninu hjá heimamönnum og skoraði tíu mörk og stal boltanum þónokkru sinnum.

Hákon Daði var á meðal betri manna í dag.Vísir/Anton Brink

Hjá FH stýrði Ómar Darri sóknarleiknum og skar liðið oft úr snörunni með frábærum skotum. Leonharð Þorgeir Harðarson var svo með fullkomna nýtingu úr horninu, sjö mörk úr sjö skotum.

Hans Jörgen Ólafsson átti ekki sinn besta dag og er greinilega enn þá að slípast saman við sína nýju liðsfélaga, en hann gekk til liðs við Aftureldingu í sumar frá Stjörnunni.

Dómarar

Kári Garðarsson og Magnús Kári Jónsson sáu um að dæma þennan leik. Höfðu ágætis tök á leiknum, en það má setja spurningarmerki við nokkrar ákvarðanir hjá þeim undir lokinn þegar hitinn og spennan var orðin hvað mest.

Stemning og umgjörð

Nokkuð rólegt yfir þessu í Mosó þar til undir lok leiks. Góð mæting var á leikinn. Stuðningsmenn liðanna greinilega byrjaðir að þyrsta í handbolta og að finna harpix-ilminn. Handboltaveturinn að fara vel af stað í Olís-deildinni.

Hrannar Guðmundsson: „Hefði viljað vinna“

„Gott stig. Úr því sem komið var í seinni hálfleik þá hefði ég viljað vinna, taka bæði stigin. Sérstaklega þar sem við fengum möguleika á því í lokin,“ sagði Hrannar Guðmundsson, þjálfari Aftureldingar, eftir jafnteflið í kvöld.

Hrannar Guðmundsson, þjálfari Aftureldingar.Vísir/Anton Brink

Hrannar var sáttur með frammistöðu sinna manna í leik þar sem þeir voru að elta allan tímann.

„Þvílíkur karakter að koma til baka eftir að hafa misst Oscar út og svo Harra með rautt. Aðrir tóku bara við keflinu og gerðu þetta vel. Sigurjón kemur inn í markið og tekur hrikalega mikilvæga bolta. Við vorum ekki frábærir í fyrri hálfleik, staðir sóknarlega og alltaf slakir varnarlega. Við komum til baka og unnum okkur inn í leikinn gegn frábæru liði. Þetta er bara gott.“

Aðspurður út í hvernig hann lítur á upphaf deildarinnar og það hikst sem var í fyrstu umferðinni vegna rafmagnsleysisins í Mosó, þá gerði hann lítið úr því og skaut á Reykvíkinga.

„Reykvíkingar tala um eins og þeir hafi aldrei lent í rafmagnsleysi. Þetta var eins og þetta hafi veri heimsendir. Þetta er bara geggjað.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira