Handbolti

Hættur hjá danska lands­liðinu eftir sam­skipti við unga leik­menn

Sindri Sverrisson skrifar
Tobias Aagaard var ráðinn til að starfa fyrir danska landsliðið á síðasta stórmóti, þegar Danir unnu EM.
Tobias Aagaard var ráðinn til að starfa fyrir danska landsliðið á síðasta stórmóti, þegar Danir unnu EM. Nordsjælland

Tobias Aagaard hefur sagt starfi sínu lausu hjá danska handknattleikssambandinu í kjölfar þess að hann var rekinn frá Nordsjælland fyrir óviðeigandi skilaboð til ungra leikmanna.

Aagaard starfaði sem myndbandsgreinandi fyrir danska karlalandsliðið sem varð Evrópumeistari í byrjun þessa árs og var auk þess yfir hæfileikamótun hjá danska sambandinu.

Nú hefur hann sagt upp, hálfum mánuði eftir að hafa verið rekinn frá Nordsjælland þar sem hann var þjálfari meistaraflokks karla um skamma hríð eftir að hafa haft umsjón með yngri flokkum félagsins.

Hinn 28 ára gamli Aagaard náði aðeins að vera þjálfari karlaliðs Nordsjælland í 17 daga áður en hann var rekinn, eftir að upp komst um „óásættanleg“ samskipti við unga leikmenn sem samræmdust ekki ábyrgð og gildum félagsins, að því er sagði í yfirlýsingu.

„Hjá Nordsjælland Håndbold eiga þjálfarar okkar að vera bæði fyrirmyndir og trúnaðarmenn. Það á ekki síst við í starfi með ungu leikmönnunum okkar. Að okkar mati hefur þeirri ábyrgð ekki verið sinnt á þann hátt sem við getum sætt okkur við og því lýkur samstarfinu,“ sagði Kim Scheuer Nielsen, framkvæmdastjóri Nordsjælland Håndbold, í síðasta mánuði.

Danski miðillinn B.T. segir að forráðamenn Nordsjælland hafi ekki viljað útskýra ákvörðun sína frekar en sagt í yfirlýsingu:

„Félagið mun halda áfram viðræðum við viðeigandi leikmenn og foreldra og jafnframt fara yfir eigin verklagsreglur, viðmiðunarreglur og áframhaldandi leiðsögn þjálfara félagsins.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×