Upp­gjörið: FH - Stjarnan  | Sann­færandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons

Hjörvar Ólafsson skrifar
Valur_FH Valur-FH mættust í 3 leik úrslitaeinvígisins í Olísdeildinni í handbolta.  Valur - FH
Valur_FH Valur-FH mættust í 3 leik úrslitaeinvígisins í Olísdeildinni í handbolta. Valur - FH Anton/Vísir

FH bar sigurorð af Stjörnunni, 38-31, í leik liðanna í fyrstu umferð Olís-deildar karla í handbolta í Kaplakrika í kvöld. 

Heimamenn hófu leikinn af miklum krafti og voru komnir 5-1 yfir eftir rúmlega fimm mínútna leik. Vörn FH var firnasterk frá upphafi til enda leiksins og þar fyrir aftan var Jón Þórarinn Þorsteinsson í miklum ham. 

Sóknarleikur FH gekk eins og vel smurð vél og um leið og liðið fann veikleika á Stjörnuvörninni var hamrað á það heita járn aftur og aftur. 

Til þess að bæta gráu ofan á svart hjá Stjörnunni missti liðið Tóka Friðriksson og Tandra Má Konráðsson af velli þar sem þeim var vísað af velli með rauðu spjaldi í fyrri hálfleik. 

Stjörnumenn komu þó grimmir inn í seinni hálfleikinn og gestirnir náðu að minnka muninn í tvö mörk, 22-20, en þá hertu FH-ingar aftur tökin í varnarleik sínum og flæðið í sóknarleiknum varð betra. 

Niðurstaðan var öruggur sjö marka sigur FH en lokatölur urðu 38-31 heimamönnum í vil. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira