Handbolti

Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endur­komunni

Aron Guðmundsson skrifar
Ólafur Guðmundsson sneri aftur inn á völlinn í gær eftir að hafa tekið skóna af hillunni en hefði viljað fá meiri spiltíma. Hann fékk að líta rauða spjaldið eftir aðeins sjö sekúndur.
Ólafur Guðmundsson sneri aftur inn á völlinn í gær eftir að hafa tekið skóna af hillunni en hefði viljað fá meiri spiltíma. Hann fékk að líta rauða spjaldið eftir aðeins sjö sekúndur.

Endurkoma Ólafs Guðmundssonar, fyrrverandi landsliðsmanns Íslands í handbolta, inn á völlinn entist ekki lengi í gær því Íslendingurinn fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur inn á vellinum.

Ólafur, sem hefur að skipa löngum ferli bæði í atvinnumennsku sem og með íslenska landsliðinu, hafði tekið þá ákvörun fyrr í ár að leggja skóna á hilluna þá 35 ára gamall. 

Þessi öfluga, rétthenta skytta lék stóran hluta atvinnumannsferilinn með Kristianstad í Svíþjóð, þar sem hann er núna búsettur ásamt fjölskyldu sinni, en hefur einnig leikið í Danmörku, Þýskalandi, Frakklandi og Sviss.

Ólafur hefur undanfarið fengið að æfa með gamla liði sínu Kristianstad þar sem að hann er afar mikils metin og þróuðust málin þannig að forráðamenn félagsins vildu hafa hann með í leikmannahópnum á yfirstandandi tímabili.

Því varð úr að Ólafur átti endurkomu inn á völlinn í gær þegar að Kristianstad tók á móti Ystad í sænska bikarnum í leik sem endaði með sigri Kristianstad sem hefur þar með tryggt sér sæti í átta liða úrslitum. 

Stuðningsmenn Kristianstad tóku afar vel á móti Ólafi fyrir leik eins og sjá má á myndbandinu hér fyrir neðan. Endurkoman fór ekki eins og Íslendingurinn hafði séð fyrir sér. 

Ólafi var skipt inn á 48.mínútu leiksins og fékk aftur dúndrandi lófaklapp frá stuðningsmönnum en ekki var hann lengi inn á vellinum því aðeins sjö sekúndum síðar fékk Ólafur að líta rauða spjaldið.

Ekki alveg byrjunin sem okkar maður hafði vonast eftir en góðu fréttirnar þær að nóg er eftir af tímabilinu. Vísir hefur ekki komist að því hvers vegna Ólafur fékk að líta rauða spjaldið en uppfærir fréttina er það kemur í ljós. 

Kristianstad er mikið Íslendingalið og þeir gerðu sig gildandi í gær. Einar Aðalsteinsson skoraði fimm mörk í sigrinum gegn Ystad, Baldur Fritz Bjarnason skoraði einnig fimm mörk og Andri Erlingson var með tvö. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×