Handbolti

Guð­jón Valur með auga­stað á lands­liðs­manni Ís­lands

Aron Guðmundsson skrifar
Orri Freyr í leik með íslenska landsliðinu á EM í upphafi árs
Orri Freyr í leik með íslenska landsliðinu á EM í upphafi árs Vísir/EPA

Orri Freyr Þorkelsson, vinstri hornamaður Sporting Lissabon og íslenska landsliðsins í handbolta er orðaður við þýska liðið Gummersbach. Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari liðsins. 

Það er miðillinn RT Handball sem greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram og segir Gummersbach hafa sýnt áhuga á því að fá íslenska landsliðsmanninn í sínar raðir.

Orri Freyr er 27 ára gamall og hefur verið með bestu mönnum Sporting undanfarin ár en liðið hefur orðið portúgalskur meistari þrjú tímabil í röð og er sigursælasta lið Portúgal.

Handkastið hefur fyrir því heimildir að yfirstandandi tímabil sé það síðasta hjá Orra sem leikmaður Sporting en ljóst þykir að hann verður eftirsóttur.

Þrír íslenskir leikmenn eru á mála hjá Gummersbach sem hefur verið að gera frábæra hluti undir stjórn Guðjóns Vals í þýsku úrvalsdeildinni. Það eru þeir Elliði Snær Viðarsson, Teitur Örn Einarsson og Garðar Ingi Sindrason.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×