Lífið

Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Þess má geta að söngkonan Dolly Parton og Donald Trump forseti Bandaríkjanna fæddust sama ár, árið 1946. 
Þess má geta að söngkonan Dolly Parton og Donald Trump forseti Bandaríkjanna fæddust sama ár, árið 1946.  Samsett

Donald Trump Bandaríkjaforseti minnist söngkonunnar Dolly Parton sem einnar bestu kántrísöngkonu allra tíma og segir að flaggað verði í hálfa stöng um öll Bandaríkin í heila viku henni til heiðurs. 

Trump greinir frá þessu í færslu á miðlinum Truth Social og segir að fráfall Parton sé „sannur missir fyrir milljónir manna.“

Dolly Parton lést í dag á heimili sínu í Nashville í Tennessee í Bandaríkjunum, 80 ára að aldri. 

„Það er með mikilli sorg sem ég tilkynni að Dolly Parton, ein af stórkostlegustu kántrísöngkonum allra tíma, og svo miklu meira, er nýlátin,“ skrifar hann.

Henni til heiðurs verði bandaríski fáninn dreginn í hálfa stöng um öll Bandaríkin í eina viku, frá og með klukkan 18:00 í kvöld. 

Forsetinn lýkur færslunni á orðunum: „Hvíl í friði, Dolly! Heimurinn elskar þig.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.