Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 2. nóvember 2026 06:51 Martha Stewart hefur marga fjöruna sopið, hér er hún með rapparanum Snoop Dogg á MTV hátíðinni árið 2017. EPA/MIKE NELSON Bandaríska athafnakonan Martha Stewart hefur beðist afsökunar og sagst hafa hlaupið á sig eftir að hún birti mynd af sér á Instagram í búningi heimilislausrar manneskju í tilefni af Hrekkjavöku. Búningurinn féll ekki í kramið á veraldarvefnum. „
ÉG ER SVÖNG HJÁLPIÐ MÉR“ stóð á skilti sem hin 84 ára gamla athafnakonan hélt á þar sem hún stillti sér upp fyrir framan heimili sitt ásamt hundunum sínum tveimur. Samkvæmt frétt Guardian stóð ekki á viðbrögðum meðal netverja sem fóru hörðum orðum um uppátækið. Athafnakonan sem er virði einhverra 400 milljóna Bandaríkjadollara eða 48,7 milljarða íslenskra króna gaf fyrst frá sér yfirlýsingu til bandarískra fréttamiðla vegna málsins. Hún sagði að búningnum hafi verið ætlað að vekja athygli á vandanum sem væri heimilisleysi og sagði hún að sér þætti miður að hafa móðgað fólk. Það hafi aldrei verið ætlunin. „Ég hef varið áratugum í að kenna öðrum hvernig á að halda upp á hrekkjavöku – deilt skemmtilegum og hátíðlegum uppskriftum, komið með einstakar föndurhugmyndir og gefið ráð um veisluhöld og gestgjafahlutverkið til að nýta sem best eina af uppáhaldshátíðum mínum á árinu.Ég er miður mín yfir því að hrekkjavökubúningurinn minn í gær, sem var ætlað að vekja meiri athygli á hinu mjög alvarlega málefni heimilisleysis, hafi móðgað fólk, sem var aldrei ætlun mín,“ sagði Stewart. Búningurinn féll ekki í kramið. „Heimilisleysi er enn ein af stærstu áskorunum og viðvarandi krísum Bandaríkjanna, málefni sem skiptir mig miklu máli og ég hef varið umtalsverðum tíma og kröftum í að styðja góðgerðasamtök sem berjast gegn þessum viðvarandi samfélagsfaraldri. Ég er staðráðin í að halda áfram að láta gott af mér leiða.“ Nokkrum klukkustundum eftir að sú yfirlýsing birtist skrifaði Stewart aðra yfirlýsingu á Instagram þar sem hún baðst afsökunar. „Það er erfitt að viðurkenna þegar maður hefur virkilega klúðrað málunum. Fyrri yfirlýsing mín gekk ekki nógu langt,“ skrifaði hún. „Ég veit að margir eiga erfitt fjárhagslega. Að klæðast búningi eins og ég gerði var tillitslaust og ekki fyndið. Mér þykir það mjög leitt.“
Hrekkjavaka Mest lesið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Lífið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Orðrómur um ástir breskra Traitors-stjarna Bíó og sjónvarp 50+: Sjúkdómasamkeppnin í matarboðinu Áskorun Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“