Lífið

Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ís­land

Freyja Þórisdóttir skrifar
„Átti frí um helgina. Fór til Íslands,“ skrifaði Robert Irwin við mynda- og myndbandasyrpuna sem hann deildi á Instagram.
„Átti frí um helgina. Fór til Íslands,“ skrifaði Robert Irwin við mynda- og myndbandasyrpuna sem hann deildi á Instagram. Instagram/robertirwinphotography

Hinn 22 ára gamli Robert Irwin er helst þekktur fyrir að feta í sömu fótspor og föður hans heitinn, Steve Irwin, og gera það gott sem  náttúruverndarsinni, dýragarðsvörður, dýralífsljósmyndari og sjónvarpsmaður. Hann átti nokkra frídaga inni og gerði sér ferð alla leið frá heimalandinu, Ástralíu, og til Íslands til að svala ferðaþorstanum.

Af færslu sem hann birti á Instagram-síðu sinni að dæma var hann í helgarfríi sem nýttist í það að skoða fossa, svartar strendur og stuðlaberg svo eitthvað sé nefnt. Meðal þeirra sem skrifuðu ummæli við færsluna voru móðir Roberts, Terri Irwin, og systir hans, Bindi Irwin.

Terri skrifaði „Himnaríki!“ við færsluna og Bindi „[É]g elska Yoda í hellinum. Svo fallegt,“ en meðal myndanna sem Robert birti var ein úr Gígjagjá við Hjörleifshöfða en gjáin er oft kölluð Yoda-hellir af ferðamönnum enda minna útlínur hellismunans á Stjörnustríðs-karakterinn Yoda.

 Fjölskyldan hefur verið í sviðsljósinu og Robert þar á meðal stóran hluta ævi sinnar. Þá sérstaklega eftir að faðir hans lést á hörmulegan hátt fyrir 20 árum en hann lést við tökur á heimildarmyndinni „Ocean's Deadliest“ í Ástralíu eftir að stingskata stakk hann í hjartastað.


Tengdar fréttir

Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“

Bindi Irwin opnaði sig nú á dögunum um erfiða baráttu sem hún hefur háð síðustu þrjú ár síðan hún greindist með endómetríósu. Margir þekkja eflaust ættarnafn hennar en Steve Irwin, faðir Bindi, var ástralskur náttúruverndarsinni og dýragarðsvörður.

Krókódíla-Steve látinn

Ástralska sjónvarpsstjarnan Steve Irwin, eða Krókódílaveiðimaðurinn, lést eftir að stingskata stakk hann í brjóstið í köfunarferð í gær.Irwin, sem var 44 ára gamall, var við vinnu á nýrri heimildarmynd um kóralrif undan ströndum Norðaustur-Queenslands, þegar atvikið átti sér stað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.