Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 31. október 2026 13:55 Andri Snær og Elizabeth Holmes koma við sögu í umtöluðum og lofuðum heimildarmyndum sem komið hafa út á árinu. Heimildarmyndin Tíminn og vatnið eftir Söru Dosa, byggð á sögu Andra Snæs Magnasonar, er tilnefnd til áhorfendaverðlauna Cinema Eye Honors. Opinni kosningu lýkur þann 2. nóvember og fækkar þá myndunum í tíu sem bítast um verðlaunin. Meðal keppinauta er umtöluð heimildarmynd um svikakvendið Elizabeth Holmes.
Íslendingar sem aðrir geta haft áhrif á gengi mynda í opinni kosningu. Hér má kjósa. Í Tímanum og vatninu eltist Andri Snær við eitthvað óáþreifanlegt. Þegar jöklarnir bráðna og minningar glatast, þegar afar og ömmur eldast og deyja, tekur hann saman tímahylki til að varðveita það sem hann elskar mest - og sendir framtíðinni. Andri Snær notar ljósmynda- og kvikmyndasafn afa síns, eigin upptökur og gamlar þjóðsögur til að vefa mynd sem er í senn fjölskyldusaga og saga um náttúru á hverfandi hveli. Leikstjóri er Sara Dosa, sem var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir Fire of Love árið 2022. Tíminn og vatnið var frumsýnd á Sundance-hátíðinni en var frumsýnd á Íslandi í ágúst. Hún hefur hlotið lof gagnrýnenda bæði hér heima og erlendis. Alls eru sautján myndir á listanum sem verður skorinn niður í tíu. The AI Doc: Or How I Became an Apocaloptimist, eftir Daniel Roher og Charlie Tyrell American Doctor, eftir Poh Si Teng Ask E. Jean, eftir Ivy Meeropol, um E. Jean Carroll The Bend in the River, eftir Robb Moss Cookie Queens, eftir Alysa Nahmias The Cycle of Love, eftir Orlando von Einsiedel Everest: The Other Side, eftir Jimmy Chin og Elizabeth Chai Vasarhelyi Everybody to Kenmure Street, eftir Felipe Bustos Sierra Give Me the Ball, eftir Liz Garbus og Elizabeth Wolff, um Billie Jean King The History of Concrete, eftir John Wilson NAZA, eftir Yuval Abraham og Rachel Szor The Oldest Person in the World, eftir Sam Green Once Upon a Time in Harlem, eftir William Greaves og David Greaves Steal This Story, Please!, eftir Carl Deal og Tia Lessin Time and Water (Tíminn og vatnið), eftir Söru Dosa Wild Inside, eftir Penny Lane You Can See Everything, eftir Nathan Fielder og Lance Oppenheim, um Elizabeth Holmes Þekktasta myndin á listanum er líklega You Can See Everything. Myndin er úr smiðju bandaríska sjónvarpsmannsins Nathan Fielder sem gert hefur garðinn frægan með sjónvarpsþáttunum Nathan For You og síðast The Rehearsal. Í myndinni fylgir hann eftir svikahrappnum Elizabeth Holmes áður en hún fer í fangelsi vegna svika hennar við fjárfesta í Theranos-skandalnum svokallaða. Fyrirtækið sérhæfði sig í meintri byltingarkenndri tækni við blóðprufur. Tilnefningar í flokki kvikmynda í fullri lengd verða kynntar 12. nóvember. Verðlaunin verða afhent á Cinema Eye Honors-hátíðinni í New York þann 11. janúar á næsta ári Cinema Eye Honors eru bandarísk verðlaun fyrir heimildarmyndir og oft rædd í samhengi við Óskarsverðlaunin þó engin formleg tengsl séu þar á milli. Verðlaunin þykja hins vegar góður mælikvarði á gengi myndanna. Má nefna að síðustu átta Óskarsverðlaunamyndir í flokki heimildarmynda voru allar á lista Cinema Eye í flokki áhorfendaverðlaunanna. Í fyrra voru átta af sextán myndum á listanum valdar á stuttlista Óskarsins og fjórar af þeim fimm sem hlutu tilnefningu, þar á meðal sigurmyndin Mr. Nobody Against Putin. Listinn getur því veitt vísbendingar um hvaða myndir gætu verið tilnefndar eða unnið til verðlauna á Óskarnum.
Bíó og sjónvarp Bandaríkin Mest lesið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Lífið Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Bíó og sjónvarp Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fleiri fréttir Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið