„Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 3. nóvember 2026 12:00 Leikarinn John Goodman hefur grennst um tugi kílóa á síðustu árum. Hann glímdi lengi við alkohólisma og byrjaði að borða yfir sig í kjölfarið. EPA Hollywood-leikarinn John Goodman segist enn vera að venjast andlitinu á sér eftir að hafa lést um hátt níutíu kíló á síðustu árum. Hann glímdi lengi við áfengissýki og varð edrú árið 2007 en viðhélt óheilbrigðum lífsstíl með því að borða óhóflega. Hann hugsi lítið um almenningsálit sem sé þó ákveðinn partur af bransanum.
Goodman var gestur í hlaðvarpinu Happy Sad Confused hjá Josh Horowitz á mánudaginn og ræddi þar þyngdartap sitt og hvernig það hefur haft áhrif á það hvernig hann nálgast leiklistina. „Ég hunsa það,“ sagði Goodman um samfélagsumræðuna um útlit sitt og bætti við: „Fyrst ég er í þessum bransa er það réttmætt skotmark, upp að vissu marki.“ Goodman fer með burðarhlutverk í Digger. „En já, ég er enn að venjast andlitinu á mér. Það er skrítið. Ég hugsa um sjálfan mig á ákveðinn hátt og síðan sé ég sjálfan mig: „Ó vá.“ Þannig já, það er margt sem ég er enn að venjast,“ sagði Goodman. Goodman var spurður hvort 180 kílóa þyngd hans hefði takmarkað tækifæri hans í bransanum og sagðist hann alveg geta tekið undir það. „Ég var alveg að vinna nóg,“ sagði hann um þau hlutverk sem hann fékk og bætti við: „Ég velti því fyrir hvort ég hafi skemmt fyrir sjálfum mér.“ Glímdi lengi við Bakkus Goodman opnaði sig nýverið um drykkju sína gegnum árin í viðtali við The New Yorker. Hann hafi á tímabili hafa verið farin að drekka í vinnunni, horft á heiminn gegnum Budweiser-flösku og byrjað á sama tíma að borða yfir sig. Hann varð edrú árið 2007 en átti samt erfitt með að halda heilbrigðri rútínu eftir það. „Ég léttist um 27 kíló um sumarið en bætti því á mig um leið. Þrjátíu kíló, 36 kíló og það varð þreytandi. Ég reyndi að taka ákveðin skref til að lenda ekki í því. Ég var orðin næstum 180 kíló. Ég var farinn að borða alkahólískt eftir að ég hætti að drekka,“ sagði hann í viðtalinu við New Yorker. Hann hafi á endanum þurft að fara í aðgerð á maga til að hjálpa sér að léttast. Því hafi þó fylgt ákveðnar aukaverkanir. „Ég varð blóðlítill og missti fitulag undir húðinni svo mér er alltaf kalt,“ sagði hann um aðgerðina. Sjá einnig: Slasaðist við tökur í Bretlandi Hann sé nú vera einbeittur að því að byggja upp sterkan kjarna eftir að hann mjaðmabrotnaði við tökur á Digger á síðasta ári. Það hefði tekið hann tvo mánuði að jafna sig.
Bíó og sjónvarp Hollywood Bandaríkin Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Arnór Sig kominn á fast Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Fleiri fréttir „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Skaut sig óvart í fótinn Iceguys reyndu við Hasselhoff Orðrómur um ástir breskra Traitors-stjarna Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Enn og aftur dæmdur í fangelsi Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Glee snýr aftur Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Sjá meira