Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Freyja Þórisdóttir skrifar 17. október 2026 09:45 Stórleikararnir Antonio Banderas og Nicolas Cage eru báðir á sjötugsaldri en Banderas varð 66 ára í ágúst en Cage 62 ára í ársbyrjun. Getty Tvenn ný þekkt nöfn bætast nú við langan lista þeirra sem farið hafa með aðalhlutverk í bandarísku spennuþáttunum True Detective en þeir Nicolas Cage og Antonio Banderas eru staðfestir að leika í næstu þáttaröð. Þættirnir hafa notið mikilla vinsælda og var síðasta þáttaröð True Detective: Night Country tekin að mestu leyti upp á Dalvík.
Báðir tveir, hinn bandaríski Cage og hinn spænski Banderas, hafa mátað sig við hlutverk í þáttunum síðasta árið eða svo og hafði Cage nánast greint frá því sjálfur að hann yrði með í næstu þáttaröð. Þá sagðist hann vera orðinn þreyttur á því að leika í kvikmyndum trekk í trekk. Í sínu nýjasta hlutverki mun Nicolas Cage reyna að tileinka sér takta og fas þjálfarans John Madden sem má sjá hér á myndinni.Getty „Þannig að ég held að ég taki líklega að mér aðra sjónvarpsþáttaröð. Ég held að ég gæti gert eina þáttaröð af True Detective. Það er í lagi að ég sé fyrstur til að tilkynna það, er það ekki?“ Þessi orð lét hann falla þegar hann lét sjá sig á Comic Con-hátíðinni í New York á dögunum. Greint hefur verið frá því að hann fari með hlutverk Henry Logan en að Banderas muni leika persónu að nafni Rai Garcia, er fram kemur í frétt Hollywood Reporter en þar segir einnig að framleiðslufyrirtækin haldi spilunum ansi þétt að sér og lítið sé annars vitað um þáttaröðina. Leikararnir hafa báðir tveir verið önnum kafnir undanfarið en Cage lauk nýverið við tökur á kvikmyndinni Madden þar sem hann fer með hlutverk John Madden, NFL-þjálfara, íþróttalýsanda og frumkvöðuls á sviði tölvuleikja. Þá lék Banderas í kvikmyndinni Tony sem var frumsýnd í sumar en hún er heimildarmynd um bandaríska matreiðslumanninn og rithöfundinn Anthony Bourdain. Líkt og fyrr segir var síðasta þáttaröð að mestu leyti tekin upp á Dalvík en þar fór stórleikkonan Jodie Foster með aðalhlutverkið, rannsóknarlögreglukonuna Liz Danvers. Dalvík var við tökurnar sett í gervi lítils bæjar í Alaska-ríki Bandaríkjanna. Þá fóru einnig tökur fram á Vogum á Vatnsleysuströnd en meðal þess sem gera þurfti í undirbúningi fyrir tökurnar var að breyta ásýnd Voga og skipta þurfti út miklum fjölda skilta í bænum og við sveitabæi á Vatnsleysuströnd. Skilti voru sett upp sem vara við dýralífi Alaska, elgum og hreindýrum, og umferðarskiltum var breytt.
Bíó og sjónvarp Bandaríkin Spánn Tengdar fréttir Býr í miðri leikmynd True Detective á Dalvík Það stendur mikið til á Dalvík þessa dagana þar sem tökur á bandarísku spennuþáttunum True Detective eru að fara að hefjast. Búið er að klæða aðalgötu bæjarins í bandarískan búning. Fyrrverandi bæjarstjóri bæjarins býr í miðri leikmyndinni. 31. janúar 2023 22:31 Vogum á Vatnsleysuströnd breytt í Alaska fyrir tökur á True Detective Mikið líf hefur verið í Vogum á Vatnsleysuströnd síðustu tvo daga þar sem tökur á bandarísku spennuþáttunum True Detective hafa farið fram. Tökurnar kröfðust mikils undirbúnings en meðal annars þurfti að setja upp skilti sem vara við dýralífi Alaska. 27. október 2022 18:21 Mest lesið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið „Þvílík gleði með þennan tíma“ Lífið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Bíó og sjónvarp Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Lífið samstarf Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Lífið samstarf Fleiri fréttir Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Sjá meira
Býr í miðri leikmynd True Detective á Dalvík Það stendur mikið til á Dalvík þessa dagana þar sem tökur á bandarísku spennuþáttunum True Detective eru að fara að hefjast. Búið er að klæða aðalgötu bæjarins í bandarískan búning. Fyrrverandi bæjarstjóri bæjarins býr í miðri leikmyndinni. 31. janúar 2023 22:31
Vogum á Vatnsleysuströnd breytt í Alaska fyrir tökur á True Detective Mikið líf hefur verið í Vogum á Vatnsleysuströnd síðustu tvo daga þar sem tökur á bandarísku spennuþáttunum True Detective hafa farið fram. Tökurnar kröfðust mikils undirbúnings en meðal annars þurfti að setja upp skilti sem vara við dýralífi Alaska. 27. október 2022 18:21