Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Andri Broddason skrifar 24. ágúst 2026 18:31 Joao Pedro var fljótur að opna markareikninginn sinn þetta tímabilið. Getty/Chris Lee Chelsea vann 3-2 sigur á Fulham í síðasta leik fyrstu umferðar í ensku úrvalsdeildinni. Joao Pedro opnaði markareikninginn snemma og vinirnir Cole Palmer og Morgan Rodgers skoruðu fyrir Chelsea. Joao Pedro var ekki lengi að opna markareikninginn fyrir Chelsea þegar hann vippaði yfir Bernd Leno þegar ekki einu sinni 40 sekúndur voru liðnar af leiknum. Hann slapp í gegn eftir sendingu inn fyrir vörn Fulham frá Cole Palmer og varð þetta fljótasta mark í sögu ensku úrvalsdeildarinnar í fyrstu umferð. Öll von var þó ekki úti fyrir Fulham því Joshua King jafnaði metin með laglegu skoti. Skotið var fast en eiginlega beint á Robert Sanchez í marki Chelsea og hefði hann mögulega átt að verja skotið. Chelsea náði þó forystunni á ný áður en flautað var til hálfleiks þegar Morgan Rogers skoraði sitt fyrsta mark í ensku úrvalsdeildinni fyrir Chelsea. Það virtist hafa kveikt í besta vini hans því Cole Palmer bætti við þriðja marki Chelsea snemma í síðari hálfleik og staðan var orðin 3-1 fyrir Chelsea. Fulham var langt frá því að gefast upp og minnkaði Gonzalo Garcia muninn eftir að boltinn datt í teiginn eftir að Sanchez varði fast skot Timothy Castagne. Þetta var fyrsta mark Garcia í ensku úrvalsdeildinni en hann kom í sumar til félagsins frá Real Madrid. Fulham náði ekki að bæta við öðru marki en á lokamínútum leiksins bætti Joao Pedro við sínu öðru marki en í aðdraganda marksins var Geovany Quenda rangstæður. Þetta reyndist lokaatvik leiksins og vann Chelsea 3-2 sigur á Fulham eftir skemmtilegan og fjörugan leik. Enski boltinn Chelsea FC Fulham FC