Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Samúel Karl Ólason skrifar 13. ágúst 2026 23:15 Þreyta getur reynst mjög hættuleg um borð í flugmóðurskipi. Sjóher Bandaríkjanna Þúsundir bandarískra sjóliða, flugmanna og hermanna hafa búið um borð í flugmóðurskipinu USS Abraham Lincoln í níu mánuði og ekki stigið á land í um 250 daga. Aðstandendur þeirra, þingmenn og aðrir hafa áhyggjur af því hve aðstæður um borð hafa versnað á þessum tíma. Áhöfnin er sögð hafa þurft að glíma við matarskort, bilaðar skólplagnir, mikið álag og þreytu.
Þá hafa fregnir borist af því að áhafnarmeðlimir hafi reynt að kasta sér í sjóinn. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, segir fregnirnar gefa ranga mynd af stöðunni um borð. Upphaflega átti sjóferð flugmóðurskipsins að ljúka í maí. Skipinu var siglt frá Kaliforníu í nóvember til sunnanverðs Kínahafs. Skipinu var svo siglt til Mið-Austurlanda í janúar vegna stríðsins gegn Íran. Skipið hefur tekið þátt í að halda Íran í herkví og stöðva öll skip sem siglt er frá landinu eða til þess. USS Abraham Lincoln hefur verið við Mið-Austurlönd frá því í janúar.Sjóher Bandaríkjanna Sjóferðin hefur margsinnis verið framlengd og liggur ekki fyrir hvenær sigla á skipinu aftur til heimahafnar. Um fimm þúsund manns eru um borð í skipinu. Öldungadeildarþingmaðurinn Richard Blumenthal vakti athygli á aðstæðum um borð í gær en áður höfðu nokkrir fjölmiðlar vestanhafs sagt fréttir af slæmu ástandi þar. Meðal annars hafa blaðamenn rætt við aðstandendur áhafnarmeðlima sem hafa lýst yfir áhyggjum af geðheilsu fólks um borð. Blumenthal birti í gær bréf sem hann hafði sent á Hegseth, þar sem hann bað um upplýsingar um stöðu flugmóðurskipsins. Þá lýsti hann yfir áhyggjum af flugmóðurskipaflota Bandaríkjanna og hvort að svo langar sjóferðir væru að verða hefðbundnar. Vísaði hann meðal annars til þess að USS Gerald Ford var 326 daga á sjó áður en skipinu var siglt til hafnar í maí. Þá hafði skipið verið í um ellefu mánuði á sjó og er það lengsta sjóferð bandarísks flugmóðurskips frá tímum kalda stríðsins. Hefðbundin sjóferð flugmóðurskips af Gerald Ford- eða Nimitz-gerð eru sex til níu mánuðir en þær geta verið lengdar á stríðstímum. Þá hafa aðrir þingmenn lýst yfir sambærilegum áhyggjum og Blumenthal. The Trump Admin must explain what they are doing to support sailors on the USS Abraham Lincoln who have been continuously at sea for nearly 7 months. Widespread reports of supply shortages, plumbing issues, deteriorating mental health & more demand immediate attention. pic.twitter.com/8eIdTHELfV— Richard Blumenthal (@SenBlumenthal) August 12, 2026 Reuters hefur eftir Hegseth að fregnirnar af ástandinu um borð í flugmóðurskipinu gefi ekki rétta mynd af stöðunni. Hann sagði við blaðamenn í dag að gengið væri úr skugga um að sjóliðar hefðu allt sem þeir þyrftu. Þá sagði ráðherrann að sumar sjóferðir væru lengri en aðrar og að hann bæri meiri virðingu fyrir áhafnarmeðlimunum en nokkrum öðrum. Wall Street Journal sagði frá því í dag að forsvarsmenn herafla Bandaríkjanna væru að undirbúa það að senda flugmóðurskipið USS George Washington til Mið-Austurlanda í stað Abraham Lincoln. Sú ákvörðun mun þó hafa verið tekin áður en fregnir byrjuðu að berast af slæmu ástandi um borð. Bandaríkjamenn eiga ellefu flugmóðurskip, sem öll eru kjarnorkuknúin. Öll þarfnast þau mikils viðhalds eftir sjóferðir og eru þau ekki öll í notkun á hverjum tíma. Þrjú til viðbótar eru í smíðum og stendur til að smíða tvö þar til viðbótar.
Bandaríkin Hernaður Mest lesið Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Fleiri fréttir Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Sjá meira