Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Samúel Karl Ólason skrifar 13. ágúst 2026 22:02 Bandarískir hermenn á æfingunni Combined Resolve í Þýskalandi í vor. Bandaríski herinn/Jamie Robinson Bandarískir hermenn í Þýskalandi héldu í vor æfingu sem úkraínsk drónasveit tók einnig þátt í. Æfingin fór ekki vel fyrir Bandaríkjamenn en Úkraínumennirnir notuðu dróna til að sigra þá, með nokkuð afgerandi hætti.
Æfingin þykir varpa enn meira ljósi á það hvað Bandaríkjamenn og aðrir eru ekki undirbúnir fyrir drónahernað, sem hefur tekið miklum og hröðum breytingum. Samkvæmt frétt Wall Street Journal var umrædd æfing liður í æfingunni Combined Resolve, sem haldin er annað hvert ár, og fór fram í apríl og í maí. Í Þýskalandi tóku um 3.500 bandarískir hermenn frá Texas þátt og var þeirra verkefni að sækja fram gegn annarri bandarískri hersveit og úkraínskri drónasveit sem var með þeim. Hermennirnir frá Texas voru með hefðbundinn búnað sem ætlað er að stöðva dróna með rafrænum truflunum eða skjóta þá niður. Þeirra verkefni var að sækja fram á bryndrekum en úkraínsku hermennirnir eru sagðir hafa fundið þá bandarísku fljótt og sigrað þá með drónum. During the exercise, called Combined Resolve, Ukrainian drone units easily spotted and defeated U.S. troops and armored vehicles on rotation from Fort Hood in Texas, according to people familiar with the events. Scoop w @macdonaldajm @DanMichaelsWSJ https://t.co/L1kFNPi6Fz— Lara Seligman (@laraseligman) August 12, 2026 Notast var bæði við dróna sem hannaðir eru til að varpa sprengjum úr lofti og hraðskreiða sjálfsprengidróna. Úkraínsku hermennirnir eru sagðir hafa sigrað þá bandarísku mjög hratt. Æfingin stóð yfir í um tvær vikur og á þeim tíma mun frammistaða bandarísku hermannanna hafa skánað töluvert en um miðbik æfingarinnar skiptu þeir úkraínsku um lið. Þá aðstoðuðu þeir hermennina frá Texas við að sækja fram. Heimildarmaður WSJ segir að í sambærilegum æfingum hafi hersveitir sem búnar eru nýjustu græjum sem eiga að stöðva dróna staðið sig mun betur. Þessi æfing var haldin um svipað leyti og aðrir úkraínskir hermenn „rústuðu“ hermönnum frá Svíþjóð og öðrum NATO-ríkjum á æfingu á Gotlandi. Svipuð staða var á annarri æfingu sem haldin var í Eystrasaltsríkjunum í vor. Reyna að læra af úkraínskum hermönnum Úkraínskir hermenn hafa öðlast gífurlega mikla reynslu af drónahernaði á undanförnum árum og í kjölfar innrásar Rússa. Drónar spila mjög stóra rullu í stríðinu en langflestir hermenn sem falla á víglínunni um þessar mundir eru vegna dróna, hvort sem þeir eru notaðir til að varpa sprengjum á þá eða þeir verða fyrir sjálfsprengjudrónum. Það er að miklu leyti vegna þess að bæði úkraínskir og rússneskir hermenn eru mjög dreifðir á víglínunni og Rússar notast að mestu við mjög fámenna hópa til að sækja fram og reyna að laumast í gegnum holurnar á vörnum Úkraínumanna. Rússneskur hermaður með dróna í Úkraínu.EPA/Varnarmálaráðuneyti Rússlands Takist þeim það koma þeir sér fyrir og leita að óvinum, sem aðrar sveitir nota svo dróna, stórskotalið eða loftárásir til að reyna að sigra. Þar að auki eru birgðir oft fluttar til þeirra og úkraínskra hermanna á víglínunni með drónum. Tækniþróunin kringum drónahernað hefur verið mjög hröð á víglínunni í Úkraínu, þar sem Rússar og Úkraínumenn keppast um forskot hvor gegn öðrum. Drónar hafa orðið hraðskreiðari og geta flogið lengur. Þá eru þeir stundum búnir gervigreind sem getur tekið við ef stjórnendur þeirra missa sambandið við þá vegna rafrænna truflana. Einnig er gjarnan notast við örþunnar netsnúrur og jafnvel tuga kílómetra langar en ekki er hægt að granda snúrutengdum drónum með rafrænum truflunum. Russia is increasingly employing FPVs and other strike UAS with pixel-lock terminal guidance, including in the Dobropillia direction. This enables operators to accurately strike targets even if the video signal is jammed for the final few hundreds of meters. https://t.co/RrmPfzh9LT— Rob Lee (@RALee85) August 13, 2026 Meðal stjórnenda bandaríska hersins eru sumir sem telja að drónar skipti minna máli fyrir Bandaríkjamenn sökum þess hvernig þeir berjast. Þeir treysta á hreyfihernað og loftárásir en víglínan í Úkraínu hreyfist gífurlega hægt. Æfingin í Þýskalandi þykir vísbending um að þessir menn hafi rangt fyrir sér. Drónar af mörgum gerðum og stærðum skipta sköpum í átökunum í Úkraínu.AP/Dan Bashakov Úkraínumenn hafa einnig mikla reynslu þegar kemur að því að granda langdrægum og hraðskreiðum sjálfsprengjudrónum, sem hafa reynst Bandaríkjamönnum og öðrum í Mið-Austurlöndum erfiðir. Sjá einnig: Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Bandaríkjamenn hafa fengið dróna frá Úkraínumönnum til að æfa sig með og þróa áfram og hafa einnig notað sérstakan varnarbúnað sem þeir fengu frá Úkraínu til að verja hersveitir sínar í Íran. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, Bandaríkjanna, sagði öldungadeildarþingmönnum í vor að hann ætlaði að senda fleiri hermenn til að læra af Úkraínumönnum.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Bandaríkin Þýskaland NATO Hernaður Tengdar fréttir Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Rússar halda enn í það minnsta sextán þúsund úkraínskum borgurum föngnum og er mörgum þeirra haldið við aðstæður sem fara gegn alþjóðasamþykktum. Pyntingar og kynferðislegt ofbeldi er sagt kerfisbundið, bæði gegn úkraínskum borgurum og stríðsföngum. 11. ágúst 2026 22:01 Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Sjálfsprengjudróni sem fannst nærri flugvelli í Þýskalandi er frá Rússlandi samkvæmt bandarískum embættismanni sem þekkir til leynilegrar skýrslu um málið. 8. ágúst 2026 13:49 Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Bandaríkjamenn hafa gengið verulega á birgðir af ýmsum nútímavopnum vegna átakanna við Íran. Þetta á sérstaklega við langdræg og nákvæm vopn eins og ATACM-eldflaugar og Tomahawk-stýriflaugar. Einnig hafa forsvarsmenn herafla Bandaríkjanna áhyggjur af því hve mörg flugskeyti í loftvarnarkerfi hafa verið notuð í stríðinu. 5. ágúst 2026 22:10 Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Rússar skutu 24 skotflaugum, fjórum annars konar eldflaugum og 115 sjálfsprengidrónum að Kænugarði og úthverfum borgarinnar í nótt. Úkraínumenn segjast hafa skotið 98 dróna niður en ekki einustu eldflaug en að minnsta kosti sautján létu lífið í árásinni og tugir eru særðir. Úkraínumenn virðast búnir með flugskeyti sín í einu loftvarnarkerfin sem þeir eiga sem geta verið notuð til að skjóta niður rússneskar skotflaugar. 5. ágúst 2026 10:30 Mest lesið Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Fleiri fréttir Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Sjá meira
Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Rússar halda enn í það minnsta sextán þúsund úkraínskum borgurum föngnum og er mörgum þeirra haldið við aðstæður sem fara gegn alþjóðasamþykktum. Pyntingar og kynferðislegt ofbeldi er sagt kerfisbundið, bæði gegn úkraínskum borgurum og stríðsföngum. 11. ágúst 2026 22:01
Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Sjálfsprengjudróni sem fannst nærri flugvelli í Þýskalandi er frá Rússlandi samkvæmt bandarískum embættismanni sem þekkir til leynilegrar skýrslu um málið. 8. ágúst 2026 13:49
Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Bandaríkjamenn hafa gengið verulega á birgðir af ýmsum nútímavopnum vegna átakanna við Íran. Þetta á sérstaklega við langdræg og nákvæm vopn eins og ATACM-eldflaugar og Tomahawk-stýriflaugar. Einnig hafa forsvarsmenn herafla Bandaríkjanna áhyggjur af því hve mörg flugskeyti í loftvarnarkerfi hafa verið notuð í stríðinu. 5. ágúst 2026 22:10
Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Rússar skutu 24 skotflaugum, fjórum annars konar eldflaugum og 115 sjálfsprengidrónum að Kænugarði og úthverfum borgarinnar í nótt. Úkraínumenn segjast hafa skotið 98 dróna niður en ekki einustu eldflaug en að minnsta kosti sautján létu lífið í árásinni og tugir eru særðir. Úkraínumenn virðast búnir með flugskeyti sín í einu loftvarnarkerfin sem þeir eiga sem geta verið notuð til að skjóta niður rússneskar skotflaugar. 5. ágúst 2026 10:30