Íranir segja viðræður á lokametrunum Samúel Karl Ólason skrifar 6. ágúst 2026 16:31 Verulega hefur dregið úr siglingum um Hormússund, sem hefur haft umtalsverð áhrif á olíuverð um heiminn allan. AP/Amirhosein Khorgooi, SNA Ráðamenn í Íran segja að samkomulag um framtíðarstjórn Hormússunds sem erindrekar ríkisins hafa unnið að í Óman vera á lokametrunum. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur gefið til kynna að samkomulag gæti verið opinberað í þessari viku. Opnun sundsins gæti verið stórt skref í að binda enda á átök Bandaríkjanna og Íran.
Erindrekar frá Óman fóru í síðasta mánuði til Íran og kynntu þar tillögu að samkomulagi sem studd var af leiðtogum annarra ríkja við Persaflóa. Sú tillaga fól meðal annars í sér valfrjáls gjöld fyrir siglingar um sundið. Þeirri tillögu höfnuðu Íranir en viðræður hafa haldið áfram. Sjá einnig: Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Verulega hefur dregið úr siglingum um sundið á undanförnum mánuðum vegna stríðs Bandaríkjamanna og Ísraela gegn Írönum. Þegar stríðið hófst gerðu Íranir árásir á skip á sundinu, komu þar fyrir tundurtuflum og lýstu því yfir að sundinu væri lokað. Hins vegar væri hægt að komast þar í gegn ef klerkastjórnin fengi toll. Þetta hefur haft gífurleg áhrif á olíumarkaði um heiminn allan, þar sem um fimmtungur allrar olíu heimsins og gífurlega mikið jarðgas var flutt um Hormússund fyrir stríðið. Íranir hafa lýst því yfir að þeir vilji hafa stjórn á Hormússundi, með yfirvöldum í Óman, sem liggur hinum megin við sundið, og rukka tolla fyrir siglingar þar um. Ráðamenn í Íran segjast alls ekki vilja snúa aftur til þess að hægt verði að sigla gegnum sundið á alþjóðlegu hafsvæði. Það hafa aðrir ekki tekið í mál, þar sem engir slíkir tollar voru fyrir stríðið og þar að auki yrðu þeir ólöglegir samkvæmt alþjóðasáttmálum um siglingar. Slík tollalagning myndi mögulega opna á það að önnur ríki setji tolla á aðrar mikilvægar skipaleiðir víða um heim. Slíkt gæti haft mikil áhrif á skipaflutninga um heiminn allan. Gæti opnað á viðræður um frið Talsmaður utanríkisráðuneytis Íran sagði í morgun að viðræðurnar við Ómana væru á lokastigi. Þá sagði hann að yfirlýsing yrði gefin út, ef „ákveðnir aðilar“ væru ekki andvígir samkomulaginu. Átti hann þar líklegast við Bandaríkjamenn. Heimildarmenn AP fréttaveitunnar segja samkomulagið byggja á öðru skammlífu samkomulagi sem Íranir og Bandaríkjamenn komust að í júní. Þetta nýja samkomulag geti verið tímabundin lausn á deilunni um Hormússund. Þar að auki gæti samkomulagið opnað á frekari viðræður milli Bandaríkjamanna og Írana um kjarnorkuáætlun klerkastjórnarinnar og önnur málefni. Hóta árásum á innviði Íranskir erindrekar hafa sent kollegum sínum í öðrum ríkjum við Persaflóa skýr skilaboð á undanförnum dögum. Þau hafa fjallað um það að annaðhvort sannfæri ráðamenn þessara ríkja Donald Trump um að hætta árásum á Íran og semja um frið, ellegar muni Íranir gera umfangsmiklar árásir á olíuinnviði, orkuver, vatnshreinsistöðvar og önnur mikilvæg skotmörk í þessum tilteknu ríkjum. Þetta hefur Reuters eftir heimildarmönnum í bæði Íran og öðrum ríkjum og eru skilaboð þessi liður í áætlun klerkastjórnarinnar um að draga úr líkunum á frekari árásum Bandaríkjamanna á Íran. Abbas Araqchi, utanríkisráðherra Íran, er sagður hafa talað við kollega sína í Sádi-Arabíu, Katar og í Tyrklandi, auk annarra, og komið þessum skilaboðum á framfæri. Hann sagði meðal annars að ef Bandaríkjamenn gerðu frekari árásir á Íran myndu Íranir svara margfalt fyrir sig með árásum á áðurnefnd skotmörk. Mohammed bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu, mun í kjölfarið hafa talað beint við Trump og beðið hann um að fresta frekari árásum og hefja viðræður að nýju. Þá tilkynnti Trump að beðið yrði með frekari árásir á Íran og sagði hann að viðræður stæðu yfir. Þær væru efnilegar.
Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Óman Donald Trump Sádi-Arabía Katar Bensín og olía Tengdar fréttir Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta Donald Trump segir ekkert til í fréttum af tómum hillum í vopnabúrum Bandaríkjanna vegna stríðsins gegn Íran. Í sama mund segir hann að verið sé að elta uppi heimildarmenn fjölmiðla sem hafa sagt frá hinum meinta skorti. Þeim verði refsað fyrir að leka yfirlýsingum sem Trump setur til jafns við landráð. 6. ágúst 2026 14:57 Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Bandaríkjamenn hafa gengið verulega á birgðir af ýmsum nútímavopnum vegna átakanna við Íran. Þetta á sérstaklega við langdræg og nákvæm vopn eins og ATACM-eldflaugar og Tomahawk-stýriflaugar. Einnig hafa forsvarsmenn herafla Bandaríkjanna áhyggjur af því hve mörg flugskeyti í loftvarnarkerfi hafa verið notuð í stríðinu. 5. ágúst 2026 22:10 Viðræður við Íran hefjist á morgun Donald Trump Bandaríkjaforseti segir viðræður við Íran um að binda enda á stríðið í Persaflóa munu hefjast á morgun, mánudag. Þær munu líklega fara fram í gegnum milliliði. 2. ágúst 2026 22:48 „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að árásum Írana á bandaríska hermenn í Jórdaníu í nótt verði svarað af mikilli hörku. Bandaríkjamenn svöruðu árásum Írana með árásum á írakskar sveitir sem sæta skipunum klerkastjórnarinnar í Teheran en Trump segir þær árásir hafa verið gerðar í samráði við yfirvöld í Bagdad. 29. júlí 2026 13:08 Mest lesið Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Fleiri fréttir Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Sjá meira
Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta Donald Trump segir ekkert til í fréttum af tómum hillum í vopnabúrum Bandaríkjanna vegna stríðsins gegn Íran. Í sama mund segir hann að verið sé að elta uppi heimildarmenn fjölmiðla sem hafa sagt frá hinum meinta skorti. Þeim verði refsað fyrir að leka yfirlýsingum sem Trump setur til jafns við landráð. 6. ágúst 2026 14:57
Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Bandaríkjamenn hafa gengið verulega á birgðir af ýmsum nútímavopnum vegna átakanna við Íran. Þetta á sérstaklega við langdræg og nákvæm vopn eins og ATACM-eldflaugar og Tomahawk-stýriflaugar. Einnig hafa forsvarsmenn herafla Bandaríkjanna áhyggjur af því hve mörg flugskeyti í loftvarnarkerfi hafa verið notuð í stríðinu. 5. ágúst 2026 22:10
Viðræður við Íran hefjist á morgun Donald Trump Bandaríkjaforseti segir viðræður við Íran um að binda enda á stríðið í Persaflóa munu hefjast á morgun, mánudag. Þær munu líklega fara fram í gegnum milliliði. 2. ágúst 2026 22:48
„Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að árásum Írana á bandaríska hermenn í Jórdaníu í nótt verði svarað af mikilli hörku. Bandaríkjamenn svöruðu árásum Írana með árásum á írakskar sveitir sem sæta skipunum klerkastjórnarinnar í Teheran en Trump segir þær árásir hafa verið gerðar í samráði við yfirvöld í Bagdad. 29. júlí 2026 13:08