Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Samúel Karl Ólason og Eiður Þór Árnason skrifa 23. júlí 2026 21:10 Staðan við Íran var skýrð í fréttum Sýnar í kvöld. Sýn Olíuverð hefur tekið mikinn kipp upp á við á undanförnum dögum. Útlit er fyrir frekari hækkanir þar sem stríð Bandaríkjanna gegn Íran gæti stækkað að umfangi og ekkert útlit er fyrir að því ljúki í bráð.
Tunnuverðið á Brent-hráolíu hækkaði mjög hratt þegar stríðið hófst í lok febrúar en það er gjarnan notað sem viðmið fyrir olíuverð á heimsvísu. Þegar samið var um vopnahlé tók verðið að lækka rólega um tíma en tók svo aftur stökk upp á við þegar stríðið hófst á ný í byrjun júlímánaðar. Í dag náði það hundrað bandaríkjadölum á tunnu og er það í fyrsta sinn frá því í maí. Telja greinendur að olíuverð geti jafnvel náð hærri hæðum en í fyrri hluta átakanna. Ein ástæðan fyrir því er að olíubirgðir eru víða lægri en þær voru áður en stríðið hófst. Margar þjóðir hafa gengið á birgðir sínar síðan þá og hafa minna svigrúm til að bregðast við mögulegum olíuskorti og afhendingartöfum. Óttast að hin leiðin lokist Áður en stríðið hófst fór um fimmtungur allrar olíu og jarðgass í heiminum um Hormússund en eftir að átök hófust stöðvaðist nær allur flutningur um sundið. Í kjölfarið fóru fyrirtæki í Sádi-Arabíu að flytja olíu- og gasútflutning sinn þvert yfir landið svo hægt væri að koma honum um borð í skip sem færu í staðinn í gegnum Rauðahaf. Nú hafa Hútar í Jemen gert árás á olíuflutningaskip á Rauðahafi og því er óttast að sú siglingarleið gæti sömuleiðis lokast. Þetta gæti orðið til þess að olía sem Sádi-Arabar vilja selja til Kína þurfi að fara hringinn í kringum Afríku með tilheyrandi flutningskostnaði og frekari þrýstingi á olíuverð. Kharg-eyja Hormússund JEMEN S.A.F. TYRKLAND SÝRLAND SÁDI-ARABÍA ÓMAN ÍRAK ÍRAN JÓRDANÍA EGYPTALAND LÍBANON ÍSRAEL KÚVEIT KÝPUR PALESTÍNA Kharg-eyja Teheran Hormússund BAREIN KATAR Óljós skilaboð Lítið virðist þokast í viðræðum Bandaríkjanna og Íran. Bandaríkjaforseti hefur bæði sagt að stjórnvöld í Íran grátbiðji um að fá að komast að samningaborðinu og að þau séu ekki tilbúin til að semja. Í sama viðtali sagðist Donald Trump íhuga að gera stórfellda árás á Íran og ákvörðun um það yrði tekin á næstu dögum. Bandaríkjaher er aftur farinn að safna miklum herafla á svæðinu og er með rúmlega 50 þúsund hermenn, mikið af flugvélum og þá sérstaklega eldsneytisflugvélum sem eru mikilvægar til að gera loftárásir. Á sama tíma hefur stjórnvöldum í Pakistan gengið illa að miðla málum milli Bandaríkjanna og Íran sem hafa skipst á að saka hvort annað um að rjúfa fyrra samkomulag.
Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Sádi-Arabía Bensín og olía Verðlag Tengdar fréttir Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Donald Trump segir að ef Hútar haldi áfram árásum á olíuflutningaskip á Rauðahafi muni hann draga bæði Írani og Húta til ábyrgðar. Árásir verði gerðar á bæði ríki. Forsetinn bandaríski segist verulega vonsvikinn með leiðtoga Húta, sem hafi hagað sér skynsamlega hingað til vegna stríðs Bandaríkjamanna gegn Íran. 23. júlí 2026 12:54 Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Olíuverð hefur haldið áfram að hækka í dag, samhliða aukinni útbreiðslu átaka í Mið-Austurlöndum og hafa fjárfestar áhyggjur af flæði olíu og jarðgass frá svæðinu. Hútar í Jemen hafa hótað því að loka Rauðahafi fyrir siglingum flutningaskipa og segjast hafa gert árás á tvö olíuflutningaskip frá Sádi-Arabíu. 23. júlí 2026 10:26 Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Uppreisnarmenn Húta í Jemen, sem ráða stórum hluta landsins, segjast hafa ráðist á tvö olíuskip frá Sádí Arabíu á Rauða hafinu í nótt. Sádíarabísk yfirvöld hafa staðfest árás á annað skipanna en ekki á hitt og enn er óljóst hvort Hútar hafi í raun verið þar að baki. Engan mun hafa sakað. 23. júlí 2026 07:18 Mest lesið Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Fleiri fréttir Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Sjá meira
Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Donald Trump segir að ef Hútar haldi áfram árásum á olíuflutningaskip á Rauðahafi muni hann draga bæði Írani og Húta til ábyrgðar. Árásir verði gerðar á bæði ríki. Forsetinn bandaríski segist verulega vonsvikinn með leiðtoga Húta, sem hafi hagað sér skynsamlega hingað til vegna stríðs Bandaríkjamanna gegn Íran. 23. júlí 2026 12:54
Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Olíuverð hefur haldið áfram að hækka í dag, samhliða aukinni útbreiðslu átaka í Mið-Austurlöndum og hafa fjárfestar áhyggjur af flæði olíu og jarðgass frá svæðinu. Hútar í Jemen hafa hótað því að loka Rauðahafi fyrir siglingum flutningaskipa og segjast hafa gert árás á tvö olíuflutningaskip frá Sádi-Arabíu. 23. júlí 2026 10:26
Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Uppreisnarmenn Húta í Jemen, sem ráða stórum hluta landsins, segjast hafa ráðist á tvö olíuskip frá Sádí Arabíu á Rauða hafinu í nótt. Sádíarabísk yfirvöld hafa staðfest árás á annað skipanna en ekki á hitt og enn er óljóst hvort Hútar hafi í raun verið þar að baki. Engan mun hafa sakað. 23. júlí 2026 07:18