Skoða að auka umfang árása enn frekar Samúel Karl Ólason skrifar 20. júlí 2026 14:38 Bandaríkjamenn notuðu á dögunum sjálfsprengibáta, eins og hafa lengi verið notaðir af Úkraínumönnum, til árása í Íran. Um er að ræða litla fjarstýrða báta sem siglt er upp að skotmörkum og þeir sprengdir í loft upp. AP/Centcom Bandaríkjamenn eru að fjölga herþotum og eldsneytisflugvélum í Mið-Austurlöndum og er til skoðunar að auka umfang árása gegn Írönum enn frekar. Í sama tíma boða bæði Bandaríkjamenn og Íranir að frekari viðræður komi enn til greina.
Að minnsta kosti þrír bandarískir hermenn eru látnir eftir árásir Írana á bandarískar herstöðvar og önnur skotmörk í Mið-Austurlöndum að undanförnu. Einn hermaður dó í Írak þegar verið var að reyna að ganga frá írönskum sjálfsprengidróna sem hafði hrapað þar. Þá dóu tveir í árás í Jórdaníu á föstudaginn og einn til viðbótar týndist en líkamsleifar hafa fundist í leit að þeim hermanni. Í heildina hafa að minnsta kosti sautján bandarískir hermenn fallið í átökunum við Íran. Þar að auki eru yfirvöld í Bandaríkjunum sögð hafa setið á upplýsingum um að tugir hermanna hefðu særst í árásum Írana í aðdraganda föstudagsins. Bandaríkjamenn hafa aukið umfang árása sinna á Íran að undanförnu og hafa einnig sent fjölmargar herflugvélar og eldsneytisflugvélar til Mið-Austurlanda. Tugum eldsneytisflugvéla, sem Bandaríkjamenn nota til að fylla á herþotur á lofti og eru mikilvægar við umfangsmiklar hernaðaraðgerðir, hefur verið flogið til Ísrael á undanförnum dögum og er von á enn fleirum á næstunni, samkvæmt frétt Reuters. Herþotu af gerðinni F-35B Lightning II lent um borð í herskipinu USS Boxer. Það skip er hannað til að bera bandaríska landgönguliða til orrustu og hefur verið notað til árása í Íran.Sjóher Bandaríkjanna Þessir flutningar þykja til marks um að Bandaríkjamenn ætli sér mögulega að auka umfang árása á Íran enn frekar á næstunni. Yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum birti í nótt myndband sem sýnir árásir sem gerðar voru um helgina. Washington Post hefur eftir ótilgreindum bandarískum embættismanni að skortur á loftvörnum og langdrægum skotfærum eins og eldflaugum gæti komið niður á ætlunum ríkisstjórnar Donalds Trump um að auka umsvif hernaðarins gegn Írönum. Þá hefðu skemmdir á hernaðarinnviðum Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum einnig áhrif á það hve mikinn herafla hægt sé að hafa á svæðinu. Embættismaðurinn sagðist ekki viss um að starfsfólk Hvíta hússins áttaði sig almennilega á stöðunni. Hér að neðan má sjá myndband sem talið er sýna árás Írana á áðurnefnda herstöð í Jórdaníu á föstudaginn, þegar að minnsta kosti tveir bandarískir hermenn féllu. Sautján hermenn og sautjánhundruð óbreyttir borgarar fallnir Frá því vopnahléið milli Bandaríkjanna og Íran féll saman fyrir rúmri viku eða svo hafa árásir Bandaríkjamanna að miklu leyti beinst að hernaðarskotmörkum í Íran og við strandlengjuna við Hormússund. Þær hafa einnig beinst að innviðum eins og brúm. Árásir hafa verið gerðar níu nætur í röð. Íranir hafa svarað fyrir sig með því að skjóta skotflaugum og beita sjálfsprengidrónum gegn skotmörkum í Kúveit, Barein og Jórdaníu. Það eru ríki sem Bandaríkjamenn hafa mikla viðveru í en árásirnar hafa einnig beinst að innviðum í þessum ríkjum eins og orkuverum og vatnshreinsistöðvum þar sem sjó er breytt í drykkjarvatn. Í þessum árásum segir New York Times að tugir bandarískra hermanna hafi særst, flestir lítillega. Þá hafa Bandaríkjamenn einnig misst þyrlur og önnur hergögn í árásunum en varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna er sagt hafa setið á þessum upplýsingum. Ráðamenn segja að yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum sé ekki skylt að segja frá því þegar hermenn særast og sérstaklega ef þeir særast eingöngu lítillega og snúa fljótt aftur til starfa. Þar að auki segja þeir að Bandaríkjamenn hafi lítið tilefni til að hjálpa Írönum að ná utan um skilvirkni árása þeirra. Eins og áður segir hafa að minnsta kosti sautján bandarískir hermenn fallið og rúmlega fjögur hundruð hafa særst. Áætlað er að rúmlega 1.700 óbreyttir borgarar í Íran hafi fallið í árásum Bandaríkjamanna og Ísraela. Hér að neðan má sjá myndband af árásum Bandaríkjamanna á flotastöð í Íran, þar sem notast var við sjálfsprengibáta. Þetta var í fyrsta sinn sem Bandaríkjamenn beita slíkum vopnum í hernaði en drónabátar af svipaðri gerð hafa lengi verið notaðir af Úkraínumönnum. Yesterday, using multiple one-way attack surface drones, CENTCOM forces successfully struck a submarine and ship maintenance facility in Iran. Three Corsair unmanned surface vessels hit the port at Bandar Abbas Naval Base, marking the first time American forces have employed sea… pic.twitter.com/bOM2kmgRxz— U.S. Central Command (@CENTCOM) July 13, 2026
Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Hernaður Tengdar fréttir Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Tveir bandarískir hermenn eru látnir og sá þriðji er týndur eftir eldflaugaárás Írans í Jórdaníu í gær, föstudag. Fjórir hermenn til viðbótar voru fluttir til nánari aðhlynningar á sjúkrahúsi en hafa þegar verið útskrifaðir. Alls hafa sextán hermenn Bandaríkjanna nú látist í átökunum. 18. júlí 2026 23:28 Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Bandaríkjaher hélt árásum sínum á Íran áfram í nótt, sjöttu nóttina í röð og fullyrða miðlar í Íran að nú hafi verið ráðist að borgaralegum innviðum á borð við brýr, lestarstöð og flugvöll. 17. júlí 2026 07:36 Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Bandaríkjamenn skutu eldflaugum á olíuflutningaskip sem hugðist leggja að bryggju á Kharg-eyju á Hormússundi. Bandaríkjastjórn hefur endurnýjað hafnarbann sitt gagnvart írönskum höfnum og að sögn embættismanna hafði skipið ítrekað verið varað við. 16. júlí 2026 06:41 Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Bandaríkin gerðu árásir á skotmörk meðfram ströndum Íran í nótt og morgun, sem líkt og fyrri daginn var svarað með árásum Írana á innviði Bandaríkjanna í Barein, Jórdaníu og Kúveit. 15. júlí 2026 06:19 Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Fleiri fréttir Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Sjá meira
Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Tveir bandarískir hermenn eru látnir og sá þriðji er týndur eftir eldflaugaárás Írans í Jórdaníu í gær, föstudag. Fjórir hermenn til viðbótar voru fluttir til nánari aðhlynningar á sjúkrahúsi en hafa þegar verið útskrifaðir. Alls hafa sextán hermenn Bandaríkjanna nú látist í átökunum. 18. júlí 2026 23:28
Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Bandaríkjaher hélt árásum sínum á Íran áfram í nótt, sjöttu nóttina í röð og fullyrða miðlar í Íran að nú hafi verið ráðist að borgaralegum innviðum á borð við brýr, lestarstöð og flugvöll. 17. júlí 2026 07:36
Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Bandaríkjamenn skutu eldflaugum á olíuflutningaskip sem hugðist leggja að bryggju á Kharg-eyju á Hormússundi. Bandaríkjastjórn hefur endurnýjað hafnarbann sitt gagnvart írönskum höfnum og að sögn embættismanna hafði skipið ítrekað verið varað við. 16. júlí 2026 06:41
Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Bandaríkin gerðu árásir á skotmörk meðfram ströndum Íran í nótt og morgun, sem líkt og fyrri daginn var svarað með árásum Írana á innviði Bandaríkjanna í Barein, Jórdaníu og Kúveit. 15. júlí 2026 06:19