Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Eiður Þór Árnason skrifar 17. júlí 2026 17:46 Þetta er ekki fyrsta skotárásin sem Ólöf Hulda Ágústudóttir upplifir á svæðinu. Aðsend - Wikimedia Commons/Tomasz Sienicki Ung íslensk kona sem býr nálægt vettvangi skotárásar í Nørresundby skammt frá Álaborg í Danmörku segir málið óþægilegt. Einn er látinn og hinn grunaði er sagður þungt haldinn á sjúkrahúsi. Lögreglumaður var sömuleiðis skotinn en hann er sagður vera í stöðugu ástandi. „
Þetta er um fjórum kílómetrum frá því þar sem ég á heima. Ég til dæmis fer í strætó þarna framhjá á hverjum degi,“ segir Ólöf Hulda Ágústudóttir sem er á tuttugasta aldursári og býr í Nørresundby ásamt fjölskyldu sinni. Hún var heima þegar fregnir bárust af skotárásinni. Ólöf segir reglulega fjallað um átök milli glæpahópa í borginni en lögreglan hafi nú gefið út málið tengist ekki slíkum átökum. „Það eru alveg klíkur hérna í Álaborg og maður hefur alveg heyrt inn á milli um bæði stunguárásir og skotárásir.“ Þrátt fyrir að slík mál hafi komið upp áður segir Ólöf það alltaf jafn óþægilegt þegar fréttir berast af slíku ofbeldi. „Maður verður alveg óöruggur, sérstaklega á kvöldin.“ Ekki hjálpi nú þegar ekki liggur fyrir hvers vegna maðurinn hleypti af skotum. Ólöf lauk nýverið framhaldsskóla í Danmörku. Notaði riffil Árásarmaðurinn notaði riffil til að skjóta á bæði almenna borgarann sem lést og lögregluna, að því er fram kemur í umfjöllun DR. Lögreglan segir að sá sem lést hafi fundist látinn á staðnum eftir að árásarmaðurinn hafði verið yfirbugaður. Hann var því ekki skotinn í skotbardaganum sem átti sér stað á milli grunaða árásarmannsins og lögreglunnar. Til skoðunar hvort hann hafi skotið á fleiri Lögreglumaðurinn sem særðist í skotbardaganum er í aðgerð en hann var skotinn í fótinn. Á sama tíma er grunaði árásarmaðurinn sagður alvarlega særður en hann var skotinn í hálsinn. Lögreglan þekkir ekki hvað honum gekk til og segir margt enn óljóst. Hún segist jafnframt hafa fengið fregnir af því að grunaði árásarmaðurinn hafi skotið á aðra almenna borgara. Óskað er eftir frekari upplýsingum. Árásarmannsins var víða leitað í dag og vegum lokað. Ólöf og móðir hennar reyndu að fara í verslun nálægt vettvangi fjórum tímum síðar en komust ekki þangað þar sem gata var enn lokuð. Lögreglan hefur gefið út að hún verði í kringum vettvanginn fram á nótt.
Danmörk Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Skotárás við Álaborg Skotárás hófst skammt frá Álaborg í Danmörku um tólfleytið á staðartíma. Fólk á svæðinu, sem er við Nørresundby, er hvatt til að leita sér skjóls. En að sögn lögreglu er árásinni sjálfri lokið. 17. júlí 2026 13:04 Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Sjá meira
Skotárás við Álaborg Skotárás hófst skammt frá Álaborg í Danmörku um tólfleytið á staðartíma. Fólk á svæðinu, sem er við Nørresundby, er hvatt til að leita sér skjóls. En að sögn lögreglu er árásinni sjálfri lokið. 17. júlí 2026 13:04